Tími fyrir Englendinga að sýna að þeir hafi lært eitthvað af skellinum á móti Íslandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2021 12:01 Ensku landsliðsmennirnir fagna hér fyrirliðanum Harry Kane eftir að hann skoraði sitt fyrsta mark á EM og innsiglaði um leið sigurinn á Þjóðverjum í sextán liða úrslitunum. AP/Andy Rain, Átta liða úrslitin á Evrópumótinu í knattspyrnu klárast í dag með leik Englendinga og Úkraínumanna og þessi leikur er að flestra mati leikur á milli Davíðs og Golíats.
í fótbolta Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Fótbolti Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Enski boltinn Alcaraz sjokkerar tennisheiminn Sport Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Fleiri fréttir „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Fótboltamaður skotinn til bana Spilar áfram með Messi í Miami Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Vålerenga úr leik eftir tap fyrir stöllum Glódísar Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Varði fjögur víti til að tryggja PSG titilinn Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Fjórir frá hjá Blikum á morgun Benítez lét Sverri byrja og flaug áfram í bikarnum KSÍ missti af meira en milljarði króna City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Nígeríumenn halda HM-draumnum á lífi með kvörtun til FIFA Man United ósátt við Marokkó og FIFA „Fyrir mér er Flamengo stærra en Real Madrid“ Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Félag Arnórs Ingva og Ísaks seldi þjálfara sinn Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Milljarðs evra munur á liðunum: Börsungar lentu í brasi gegn þriðju deildar liði Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Sjáðu flottasta mark í heimi árið 2025 Bonmatí og Dembele best í heimi Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Sjá meira
Er vanmat kannski meira áhyggjuefni fyrir enska landsliðið á EM í kvöld en sjálfir mótherjarnir í úkraínska landsliðinu? Það búast allir við enskum sigri en fyrir fimm árum síðan var kannski svipað upp á teningnum í Nice. Það reyndist vera síðasti leikur Englendinga á EM og hápunktur íslenska ævintýrsins í Frakklandi. We are not afraid : Ukraine s media get ready for England showdown https://t.co/vNOAqrytik— The Guardian (@guardian) July 2, 2021 Englendingar fögnuðu gríðarlega þegar þeim tókst loksins að yfirbuga þýsku grýluna á stórmóti og slá Þjóðverja út í sextán liða úrslitum Evrópumótsins. Margt hjá enska liðinu er farið að minna á heimsmeistaraliðið frá 1966. 55 árum síðar gæti liðið líka endurtekið leikið með því að vinna úrslitaleik á Wembley. Enska landsliðið hefur enn ekki fengið á sig mark á Evrópumótinu í knattspyrnu en liðið hefur heldur ekki spilað á útivelli. Eftir fjóra tandurhreina leiki á Wembley eru þeir ensku komnir til Rómar þar sem þeir mæta Úkraínu í átta liða úrslitum í dag. It was night to remember but we're not done yet!Next stop: Ukraine on Saturday pic.twitter.com/knwOQAA8T6— England (@England) June 30, 2021 Það er samt hættulegt að horfa of langt. Úkraína er sýnd veiði en ekki gefin. Liðið rétt skreið vissulega áfram í sextán liða úrslitin en er komið lengra en bæði liðin fyrir ofan sig í riðlinum, Holland og Austurríki, sem duttu út í sextán liða úrslitum. Úkraína fór einnig taplaus í gegnum undankeppnina og endaði þar þremur stigum ofar en Evrópumeistarar Portúgals. Englendingar horfa nefnilega flestir lengra í undanúrslitin og úrslitaleikinn sem fara báðir fram á Wembley. Fyrst þarf hinsvegar að slá út skeinuhætt lið Andriy Shevchenko. Það er væntanlega enginn búinn að gleyma því sem gerðist á móti Íslandi á síðasta Evrópumóti. Líkt og gegn Íslendingum þá eru þeir ensku að mæta liði sem hefur aldrei komist svona langt áður á Evrópumótinu. 2-1 tap Englendinga á móti Íslandi í Nice er eitt vandræðalegasta mómentið í sögu landsliðsins. Liðið svaraði því með því að komast í undanúrslit á HM í Rússlandi fyrir þremur árum. Nú vilja menn meira. Happy to be back in Rome and playing the quarter-finals at the Olimpico Stadium it will be a great emotion! @EURO2020 @uafukraine #UkraineEnglandhttps://t.co/zHuQBwJ9O4 pic.twitter.com/0437OecZx1— Andriy Shevchenko (@jksheva7) July 2, 2021 Sú staðreynd að enska landsliðið hefur ekki fengið á sig mark í 360 mínútur á þessu Evrópumóti er mögnuð en þrátt fyrir að enska liðið sé fullt af spennandi sóknarmönnum þá spilar liðið varnarsinnaðan fótbolta þar sem mörgum leikmönnum er greinilega bannað að fara úr stöðu. Harry Kane skoraði langþráð mark í síðasta leik og hefur kannski grafið upp skotskóna sem gætu verið slæmar fréttir fyrir mótherja enska liðsins. Raheem Syerling var sá eini sem skoraði á fyrstu 355 mínútum Englendinga í keppninni. Recap of Tuesday action at EURO 2020:England defeats Germany 2-0, the team's 1st victory vs Germany in a major tournament knockout stage since 1966Ukraine defeats Sweden 2-1, the teams's 1st knockout stage victory at a major tournament (national team established in 1992) pic.twitter.com/in0CExS9h8— ESPN Stats & Info (@ESPNStatsInfo) June 29, 2021 Úkraínumenn spiluðu seinna um daginn og lengra leik en Englendingar í sextán liða úrslitunum. Hvort þreyttir fætur hafi áhrif eða hvort liðið sé búið að vinna sinn sigur með því að komast svona langt, á eftir að koma í ljós. Pressan verður alltaf á enska liðinu í kvöld. Þeir eru eitt sigurstranglegasta liðið sem er eftir í keppninni og það yrðu mikil vonbrigði að detta út í þessum leik nú þegar vegurinn sýnist greiður alla leið í úrslitaleikinn. Leikur Englendinga og Úkraínumanna hefst klukkan 19.00 í kvöld og verður sýndur beint á EM-stöðinni. EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 er einnig hægt að kaupa stakt á lækkuðu verði frá og með 24. júní á kr. 3.990.
EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 er einnig hægt að kaupa stakt á lækkuðu verði frá og með 24. júní á kr. 3.990.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Fótbolti Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Enski boltinn Alcaraz sjokkerar tennisheiminn Sport Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Fleiri fréttir „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Fótboltamaður skotinn til bana Spilar áfram með Messi í Miami Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Vålerenga úr leik eftir tap fyrir stöllum Glódísar Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Varði fjögur víti til að tryggja PSG titilinn Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Fjórir frá hjá Blikum á morgun Benítez lét Sverri byrja og flaug áfram í bikarnum KSÍ missti af meira en milljarði króna City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Nígeríumenn halda HM-draumnum á lífi með kvörtun til FIFA Man United ósátt við Marokkó og FIFA „Fyrir mér er Flamengo stærra en Real Madrid“ Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Félag Arnórs Ingva og Ísaks seldi þjálfara sinn Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Milljarðs evra munur á liðunum: Börsungar lentu í brasi gegn þriðju deildar liði Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Sjáðu flottasta mark í heimi árið 2025 Bonmatí og Dembele best í heimi Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Sjá meira