Innlent

Dóra Björt segir um­deilda fíkni­efna­aug­lýsingu ó­boð­lega

Jakob Bjarnar skrifar
Dóra Björt, borgarfulltrúi Pírata sem eru í meirihlutasamstarfi í borginni, bætist nú í hóp þeirra sem á erfitt með að sætta sig við það að hafa verið fífluð til að vera með í auglýsingu Félags íslenskra fíkniefnalögreglumanna.
Dóra Björt, borgarfulltrúi Pírata sem eru í meirihlutasamstarfi í borginni, bætist nú í hóp þeirra sem á erfitt með að sætta sig við það að hafa verið fífluð til að vera með í auglýsingu Félags íslenskra fíkniefnalögreglumanna. vísir/vilhelm/getty

Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata fordæmir auglýsingu sem Félag íslenskra fíkniefnalögreglumanna birtu í síðustu viku og telur afar vafaasamt að nafn Reykjavíkurborgar sé lagt við slíkan áróður.

„Það vekur því athygli að á lista yfir aðila sem styðja við skilaboðin er að finna Reykjavíkurborg, Bílastæðasjóð og Hitt húsið. Ég vil lýsa því skýrt yfir að ég tek ekki undir slíkan hræðsluáróður. Reykjavíkurborg hefur skaðaminnkun sem hluta af sinni yfirlýstu stefnu. Þetta er að mínu mati gjörsamlega óboðlegt,“ segir Dóra Björt í harðorðum pistli sem hún birtir á Facebook-síðu sinni.

Eins og Vísir hefur fjallað um er téð auglýsing afar umdeild og nú eru að koma fram ýmsir þeir sem keyptu styrktarlínu eða fyrirtækjamerki og segja að styrkur til þeirra hafi verið sóttur á fölskum forsendum.

Dóra Björt segir skilaboð auglýsingarinnar ganga „gjörsamlega í berhögg við þá pólitík sem ég og við Píratar stöndum fyrir. Gegn hugmyndafræði skaðaminnkunar, fræðslu frekar en hræðslu, auk þess sem hægt er að lesa skilaboðin sem sett fram til höfuðs þingmálum sem minn flokkur hefur staðið fyrir eða tekið þátt í að ýmist leggja grunn að eða hreinlega útbúa eins og frumvörp um afglæpavæðingu og neyslurými sem og þingsályktun um mótun stefnu til að draga úr skaðlegum afleiðingum og hliðarverkunum vímaefnaneyslu.“

Dóra Björt hefur beðið um svör innan borgarkerfisins hvernig þetta gat gerst, að Reykjavíkurborg og batterí á vegum borgarinnar lentu inni á auglýsingunn.

„Ég er mjög ósátt við það og mun beita mér fyrir því að svona geti ekki aftur gerst, hafi einhver á vegum borgarinnar komið að þessu máli. Ég vona að svo sé ekki, en eins og bent hefur verið á þá hafði Rauði krossinn sem dæmi ekki samþykkt að vera á þessum lista.“


Tengdar fréttir

Notuðu nafn Rauða krossins án sam­þykkis fyrir á­róður gegn grasi

Rauði krossinn á Íslandi segir að Félag íslenskra fíkniefnalögreglumanna hafi notað nafn samtakanna án samþykkis í auglýsingu sem félagið birti í Morgunblaðinu síðasta fimmtudag. Í auglýsingunni er varað við neyslu kannabis og efnið sagt geta valdið „ótímabærum dauða“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×