Tæplega helmingur segist vilja enga snertingu eða bara að fætur eða hendur snertist til að sætta bæði maka og svefn.
Eflaust getur það verið miserfitt fyrir pör að ná hinu fullkomna jafnvægi milli þess að sýna og finna fyrir nánd frá maka sínum og þess að fá ótruflaða hvíld en greinilegt er á svörum lesenda að þarfirnar eru misjafnar.
Nákvæmari niðurstöður* má sjá hér fyrir neðan:
Í hvernig stellingu finnst þér best að sofa?
Ég vil helst enga snertingu - 37%
Í skeið - ég vil vera litla skeiðið - 17%
Í skeið - ég vil vera stóra skeiðin - 21%
Í einhverskonar faðmlögum - 13%
Ekki í faðmlögum en fætur eða hendur snertast - 12%
*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.