Menning

Leitinni að Ídu og Emil í Katt­holti lokið

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Þessi fjögur munu fara með hlutverk sænsku systkinanna Emils og Ídu í Kattholti.
Þessi fjögur munu fara með hlutverk sænsku systkinanna Emils og Ídu í Kattholti. Borgarleikhúsið

Listrænir stjórnendur uppsetningar Borgarleikhússins á leiksýningu um Emil í Kattholti hafa nú hitt öll þau tólfhundruð börn sem sóttust eftir því að leika Emil eða litlu systur hans Ídu í uppsetningunni og tekið ákvörðun um hver hreppa hlutverkin.

Fjögur börn munu fara með hlutverkin tvö í sýningunni. Emil verður túlkaður af hinum tíu ára Gunnari Erik Snorrasyni og Hlyni Atla Harðarsyni. Það kemur svo í hlut Sóleyjar Rúnar Arnarsdóttur, níu ára og Þórunnar Obbu Gunnarsdóttur, átta ára, að leika Ídu.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu frá Borgarleikhúsinu.

„Þarna eru einstaklega hæfileikarík börn á ferðinni sem verður gaman að fylgjast með í Kattholts-ævintýrinu, en verkið verður frumsýnt í nóvember!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.