Í kvennaflokki sigraði Berglind Björnsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur. Hún spilaði jafnt golf alla þrjá hringina og sigraði með yfirburðum. Hún spilaði hringina þrjá á 219 höggum eða þremur yfir pari (74-73-72).
Í öðru sæti var Saga Traustadóttir einnig úr Golfklúbbi Reykjavíkur en hún spilaði hringina þrjá á 227 höggum eða 11 yfir pari (78-77-72). Í þriðja sæti var svo Andrea Ýr Ásmundsdóttir úr Golfklúbbi Akureyrar á 233 höggum eða 17 yfir pari (76-79-78).

Í karlaflokki sigraði Axel Bóasson úr Golfklúbbnum Keili af miklu öryggi. Hann spilaði frábært golf alla dagana við erfiðar aðstæður. Hann spilaði hringina þrjá á 205 höggum eða 11 höggum undir pari (66-70-68).
Í öðru sæti var Andri Már Óskarsson á 211 höggum eða 5 höggum undir pari (69-70-72). Mikil barátta var um þriðja sætið sem endaði þannig að þrír kylfingar deildu með sér þriðja sætinu á 215 höggum eða 1 undir pari.
Það voru Fannar Ingi Steingrímsson úr Golfklúbbi Hveragerðis (70-77-68), Birgir Björn Magnússon úr Golfklúbbnum Keili (75-69-71 og Ingi Þór Ólafsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar (70-74-71).
