12 dagar í EM: Tvö fyrstu landsliðsmörk Skallaskrímslisins unnu EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. maí 2021 12:01 Horst Hrubesch hleypur um með bikarinn eftir sigur Vestur-Þjóðverja á EM 1980 þar sem hann skoraði bæði mörkin í úrslitaleiknum. Getty/Peter Robinson Vísir telur niður í Evrópumótið í knattspyrnu sem hefst 11. júní næstkomandi. Vestur-Þjóðverjar urðu Evrópumeistarar í annað skipti þökk sé einum óvæntri hetju.
í fótbolta Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Íslenski boltinn Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Fleiri fréttir Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik „Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“ Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum HM-draumurinn úti hjá Betu og Belgum eftir vító Hákon og félagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast Glódís nær risaáfanga og þrjár koma nýjar inn Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Skotflaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ronaldo Dagskráin í dag: United-menn í Madrid og Hákon mætir Arsenal Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Sjá meira
Fjöldi þátttökuþjóða í úrslitakeppni EM tvöfaldaðist fyrir keppnina sumarið 1980. Fyrstu fimm Evrópukeppnirnar höfðu aðeins verið með fjórar keppnisþjóðir en nú breyttist úrslitakeppnin í átta þjóða keppni. Það voru hins vegar engin undanúrslit heldur aðeins riðlakeppni og svo úrslitaleikur. Hetja Vestur-Þjóðverja í úrslitaleiknum var framherjinn stóri og stæðilegi Horst Hrubesch sem skoraði tvö mörk í úrslitaleiknum á móti Belgíu þar á meðal sigurmarkið með þrumuskalla tveimur mínútum fyrir leikslok. #HorstHrubesch was West Germany's match-winning hero in the Euro 1980 Final in Rome against Belgium, Hrubesch scored two goals, the second a trademark bullet header, in the 89th minute. He is best known in the English-speaking world "The man they call 'The Monster'". @DFB_Team_EN pic.twitter.com/GcL3MC6EVw— Fútbolismo (@ftblsm) April 17, 2019 Þetta voru fyrstu landsliðsmörk Hrubesch og aðeins hans fimmti landsleikur. Hrubesch var enn bara að spila með áhugamannaliði þegar hann var 23 ára en sló í gegn hjá Rot-Weiss Essen og var á þessum árum í risahlutverki hjá stórliði Hamburger SV sem var mjög sigursælt á þessum árum. Þjálfarinn sem uppgötvaði hann hjá Rot-Weiss Essen gaf honum gælunafnið Skallaskrímslið. „Ég reyndi alltaf að spila eins einfalt og mögulegt var og nýta mína hæfileika. Ég var með góðan stökkkraft og hafði ágæta tímasetningu. Ég spilaði í Bundesligunni í átta ár og 81 af 136 mörkum mínum voru skallamörk,“ sagði Horst Hrubesch í viðtali við heimasíðu UEFA. Það leit samt ekki út fyrir það að Hrubesch yrði valin í EM-hópinn hjá Vestur-Þjóðverjum enda hafði hann ekki spilað landsleik í mars 1980 þremur mánuðum fyrir úrslitaleikinn. Hann fékk tækifærið þegar Klaus Fischer fótbrotnaði í aðdraganda mótsins. 6 8 - Happy Birthday, Horst Hrubesch! pic.twitter.com/0bsSmxFDWJ— UEFA.com DE (@UEFAcom_de) April 17, 2019 Vestur-þýska landslðið var samt búið að spila þrjá leiki á mótinu þegar kom að úrslitaleiknum og Hrubesch hafði enn ekki skorað mark á mótinu. „Staðan mín í liðinu var í hættu. Ég var búinn að spila þrjá leiki án þess að skora og ef Jupp Derwall þjálfari hefði ekki valið mig í byrjunarliðið í úrslitaleiknum þá hefði ég ekki getað mótmælt því. Þegar við lítum til baka þá tók hann rétta ákvörðun,“ sagði Horst Hrubesch í viðtali við heimasíðu UEFA. Hrubesch var þekktastur fyrir skallamörkin sín enda 188 sentimetrar á hæð og mjög öflugur í loftinu. Fyrsta markið hans kom eftir aðeins tíu mínútuna leik og það var ekki skallamark. Belgar náðu hins vegar að jafna í seinni hálfleiknum. „Við höfðum ekki lifað af framlenginguna. Það var mjög heitt og ég man að ég var svo þreyttur eftir leikinn að ég gat varla lyft bikarnum,“ sagði Hrubesch. „Seinna markið mitt kom eftir hornspyrnu Karl-Heinz Rummenigge frá vinstri. Það var undirbúið eins og öll okkar horn. Rummenigge gaf mér merki og Jean-Marie Pfaff markvörður gerði þau mistök að vera á línunni. Ég náði góðu uppstökki og hafði ekki í miklum vandræðum með að skalla boltann í markið,“ rifjaði Hrubesch upp. Happy 70th birthday, Horst #Hrubesch! As a player: Euro 1980 winner 1982 World Cup runner-upAs a coach: U19 Euro 2008 winner U21 Euro 2009 winner 2016 Olympic silver medallist#DieMannschaft pic.twitter.com/OF9Gv900lc— Germany (@DFB_Team_EN) April 17, 2021 Horst Hrubesch skoraði aðeins fjögur landsliðsmörk til viðbótar á ferlinum og eitt þeirra kom í úrslitakeppni HM 1982 á Spáni þar sem hann vann silfur með vestur-þýska landsliðinu. Hrubesch varð líka þrisvar sinnum þýskur meistari með Hamburger SV (1979, 1982 og 1983) auk þess að vinna Evrópukeppni meistaraliða árið 1983. watch on YouTube EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.
EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Íslenski boltinn Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Fleiri fréttir Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik „Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“ Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum HM-draumurinn úti hjá Betu og Belgum eftir vító Hákon og félagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast Glódís nær risaáfanga og þrjár koma nýjar inn Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Skotflaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ronaldo Dagskráin í dag: United-menn í Madrid og Hákon mætir Arsenal Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Sjá meira