Lífið

Stjörnu­lífið: Brúð­kaup, fegurðar­keppni og af­mæli

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtilegir dagar að baki hjá mörgum. 
Skemmtilegir dagar að baki hjá mörgum. 

Útivist, fegurðarsamkeppni og partístand einkenna Stjörnulíf vikunnar. Með hverri vikunni færist enn meiri von í þjóðina eftir langa baráttu við útbreiðslu kórónuveirunnar.

Raunveruleikastjarnan og samfélagsmiðlastjarnan Binni Glee birti til að mynda rándýra mynd af sér frá teiti sem hann var viðstaddur í. 

Athafnarkonan Kristbjörn Jónasdóttir fagnaði 34 ára afmælisdegi sínum í Katar þar sem hún býr með eiginmanni sínum Aroni Einari Gunnarssyni, landsliðsfyrirliði Íslands í knattspyrnu.

Samfélagsmiðlastjarnan Sunneva Einars birti tvær fallegar myndir á dögunum.

Það sama gerði leikkonan Kristín Pétursdóttir. 

Söngkonan Svala Björgvinsdóttir skellti sér út að borða með kærastanum Kristjáni Einari og fóru þau á Tabasbarinn í miðborg Reykjavíkur. 

Stjörnulögmaðurinn Vilhjálmur Hans fór einnig út að borða um helgina og valdi hann veitingarstaðinn No Concept.

Fegurðardrottningin Birta Abiba fór í myndatöku úti í sólinni.

 María Birta og Elli Egilsson eru farin af stað í ferðalag vestanhafs. 

Ástrós Rut og Davíð Örn Hjartarson gáfu nýfæddum dreng sínum nafn. Hann fékk nafnið Eiður Ben Davíðsson en þetta er fyrsta barn parsins saman. Bæði eiga þau barn úr fyrri samböndum. 

Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class, birti fallegar myndir á Instagram. 

Rúrik Gíslason og Renata dönsuðu Paso Doble í skemmtiþættinum Let´s Dance í þýska sjónvarpinu á föstudagskvöldið. Þau komust áfram og eru enn með sigurstranglegustu pörunum. 

 „32. Fullkomin afmælishelgi að baki með fólkinu mínu. Það sem ég er rík af fjölskyldu og vinum, kemst ekki yfir það. Ég sofnaði alsæl um níuleytið í gærkvöldi eins og góðu fólki á mínum aldri sæmir,“ skrifar Eva Laufey Kjaran í færslu á Instagram. 

Greta Salóme er með alvöru markmið fyrir vikuna. Hún ætlar til að mynda að hjóla upp að gosstöðvunum. 

 Ljósmyndarinn Helgi Ómarsson fór upp að goðsstöðvunum og birti eðlilega skyldumyndirnar. 

Elísabet Hulda tók þátt fyrir Íslands hönd í Miss Universe á Hardrock Guitar hótelinu á Flórída og komst hún ekki áfram þegar keppendum fækkuði eftir niðurskurð.

Manuela Ósk Harðardóttir framkvæmdastjóri Miss Universe Iceland fylgdi Elísabetu út á keppnina. 

 Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir skellti sér í Bláa Lónið um helgina. 

 Eliza Reed, eiginkona Guðna Th. forseta Íslands, er mætt aftur heim á klakann. 

Samfélagsmiðlastjarnan og hlaðvarpsstjórnandinn Edda Falak gagnrýnir heimilslækni í færslu sinni á Instagram. 

„Að konan telji eðlilegt að kveikja elda karlmannsins og bjóða manninum hálfa leið eða lengra, bara til að slökkva svo eldinn ef henni sýnist svo. vissulega geta flestir karlmenn hamið sig - en augljóslega ekki allir. Það sem ég er að hvetja til, er að konan gæti sín, kyneðlið er villidýrs eðli ef það fer af stað. “ Guðmundur Pálsson heimilslæknir.

„Ef mér verður nauðgað er það þá mér að kenna? af því að ég kveikti eldinn?

Skiptið um heilsugæslustöð.“

Leikstjórinn Baldvin Z sýnir frá tökum sjónvarpsþáttaröðinni Svörtu sandar. 

Tónlistarkonan Birgitta Haukdal er að huga að tónlist. Spurning hvort hún sé að að fara semja nýja tónlist.

Garðar Viðarsson, betur þekktur sem Gæi, er nokkuð vinsæll á samfélagsmiðlum en hann gekk í það heilaga með Önnu Björk Erlingsdóttur um helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.