Lífið

Stjörnulífið: Mæðradagur og eigandinn hélt einkapartí á B5

Stefán Árni Pálsson skrifar
Birgitta Líf og Binni Glee voru í gír um helgina. 
Birgitta Líf og Binni Glee voru í gír um helgina. 

En í Stjörnulífinu þessa vikuna má sannarlega finna nokkrar sólarmyndir.

Það er alveg ljóst að gluggaveðrið hefur farið vel í landann undanfarna daga en sólin hefur verið sjáanleg hér á landi en hitastigið mætti kannski vera örlítið hærra. Svo var mæðradagurinn í gær heldur betur fyrirferðamikill á Instagram.

Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson sér fyrir sér annað sumar þar sem Íslendingar ferðast innanlands. 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, fór með góðum vinkonum upp á Hvannadalshnúk.

 Rúrik Gíslason og Renata halda áfram að slá í gegn í dansþættinum Let´s Dance. 

Bjarni Ben fagnaði bólusetningu með góðri mynd á Instagram. Hann fékk Astra Zeneca. 

 „Ég er mamma. Þarna er mynd af mér þreyttri einstæðri 2ggja barna móðurinni ofan á bangsahrúgu í rúminu mínu. Það er jafn geggjað og stórkostlegt og það er erfitt að vera 24/7 x 365 með barn/börn. Allt erfiðið en líka öll hamingjan, lærdómurinn og þroskinn. Mömmur eru all in, alltaf, það er bara þannig. Mamma mín er þannig líka. Takk mamma mín fyrir að vera til staðar og takk líf fyrir að hleypa mér í móðurhlutverkið. Ekkert jafnast á við það. Ég er að segja ykkur það, ekki neitt.“

Þetta skrifar leik og söngkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir á mæðradaginn.

 Skemmtikrafturinn Eva Ruza birti skemmtilegt mömmumyndband. 

Leikkonan Unnur Eggertsdóttir naut sín vel um helgina. 

Samfélagsmiðlastjarnan og raunveruleikastjarnan Binni Glee segist vera orðinn borgardama. 

 Samfélagsmiðlastjarnan Brynja Dan er mjög stolt móðir.

„Gleðilegan mæðradag allar mæður og allskonar mæður. Hversu geggjað hlutverk.“

Daði Freyr og Gagnamagnið er mætt til Rotterdam en íslenski hópurinn stígur á svið 20.maí í Ahoy höllinni í Rotterdam.

Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðstjóri World Class og nýr eigandi B5, bauð vinkonum sínum í drykk á svölunum og var fínasta stemning. Seinna um kvöldið var einkapartí á lokuðum B5 þar sem aðeins útvaldir fengu að mæta. 

„Elsku drengirnir mínir. Takk fyrir að velja mig, takk fyrir að gefa mér þann heiður að fá að ganga með ykkur, fæða ykkur, fylgja ykkur & leiðbeina í gegnum lífið. Takk fyrir að gefa mér ómælda gleði, tilgang & lita líf mitt af ykkar skærustu litum á hverjum einasta degi. Í dag er samt dagurinn minn svo það er eins gott að þið hagið ykkur - “Silfur og gull á ég ekki en það sem ég hef, það gef ég þér” Gleðilegann mæðradag kæru vinkonur & kraftmiklu konur.“

Þetta skrifar samfélagsmiðlastjarnan Camilla Rut við myndir sem hún birtir með færslunni.

 Samfélagsmiðlastjarnan Katrín Edda Þorsteinsdóttir fagnar ástinni og afmælisdegi sínum.

Jón Jónsson stoltur af konunni sinni, Hafdísi Björk. „Til lukku með daginn, ofurmamma. Við elskum þig.“

Felix Bergsson er mættur til Rotterdam og hefur það gott á hótelinu. Hann er fararstjóri íslenska hópsins í Eurovision.

Söngkonan Selma Björnsdóttir er þakklát fyrir börnin sín á mæðradeginum. 

 Athafnarkonan Tanja Ýr hefur það heldur betur gott á Miami í Flórída. 

Crossfit-stjarnan Katrín Edda Davíðsdóttir er stolt af sinni mömmu. 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.