Durant sneri aftur með stæl og Brooklyn á toppnum Sindri Sverrisson skrifar 26. apríl 2021 07:31 Kevin Durant horfir á eftir boltanum fara ofan í körfuna í sigrinum á Phoenix Suns í nótt. AP/Kathy Willens Eftir að hafa misst af þremur leikjum vegna meiðsla sneri Kevin Durant aftur með Brooklyn Nets í gærkvöld og skoraði 33 stig í 128-119 sigri gegn Phoenix Suns. Brooklyn (41 sigur, 20 töp) er því eitt á toppi austurdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta nú þegar liðið á ellefu leiki eftir fram að úrslitakeppni. Philadelphia 76ers (39/21) berjast við Brooklyn um austurdeildarmeistaratitilinn en eru í 2. sæti eftir fjögur töp í röð. Tap Phoenix (42/18) þýðir einnig að Utah Jazz (44/16) styrkti stöðu sína á toppi vesturdeildar. Durant kom inn af bekknum í gærkvöld eftir að hafa misst af síðustu leikjum vegna meiðsla í læri. Hann lék þó 28 mínútur. Brooklyn komst tíu stigum yfir í fyrsta sinn, 102-92, snemma í fjórða leikhluta eftir að Durant skoraði fyrstu fimm stigin í leikhlutanum. Kyrie Irving var stigahæstur hjá Brooklyn með 34 stig en Devin Booker setti niður 36 stig fyrir Phoenix sem tapaði öðrum leik sínum í röð. Úrslitin í gær:
Brooklyn (41 sigur, 20 töp) er því eitt á toppi austurdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta nú þegar liðið á ellefu leiki eftir fram að úrslitakeppni. Philadelphia 76ers (39/21) berjast við Brooklyn um austurdeildarmeistaratitilinn en eru í 2. sæti eftir fjögur töp í röð. Tap Phoenix (42/18) þýðir einnig að Utah Jazz (44/16) styrkti stöðu sína á toppi vesturdeildar. Durant kom inn af bekknum í gærkvöld eftir að hafa misst af síðustu leikjum vegna meiðsla í læri. Hann lék þó 28 mínútur. Brooklyn komst tíu stigum yfir í fyrsta sinn, 102-92, snemma í fjórða leikhluta eftir að Durant skoraði fyrstu fimm stigin í leikhlutanum. Kyrie Irving var stigahæstur hjá Brooklyn með 34 stig en Devin Booker setti niður 36 stig fyrir Phoenix sem tapaði öðrum leik sínum í röð. Úrslitin í gær: Charlotte 125-104 Boston Brooklyn 128-119 Phoenix Portland 113-120 Memphis Washington 119-110 Cleveland Atlanta 111-104 Milwaukee Orlando 112-131 Indiana Golden State 117-113 Sacramento NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Charlotte 125-104 Boston Brooklyn 128-119 Phoenix Portland 113-120 Memphis Washington 119-110 Cleveland Atlanta 111-104 Milwaukee Orlando 112-131 Indiana Golden State 117-113 Sacramento
NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
NBA Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Grindavík - Keflavík | Suðurnesjaslagur af bestu gerð Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni Sjá meira