Sjáðu mörkin sem settu allt í uppnám í titilbaráttunni á Spáni Sindri Sverrisson skrifar 12. apríl 2021 16:30 Cristian Tello skorar jöfnunarmark Real Betis gegn Atlético Madrid. Getty/Fran Santiago Spennan er rosaleg í baráttunni um spænska meistaratitilinn í fótbolta eftir leiki helgarinnar. Atlético Madrid, Real Madrid og Barcelona berjast um titilinn og eiga átta umferðir eftir. Atlético hefur kastað frá sér öruggu forskoti á toppi deildarinnar og er aðeins stigi á undan Real Madrid, eftir 1-1 jafntefli við Real Betis í gær. Yannick Carrasco kom Atlético yfir en Tello jafnaði metin á 20. mínútu. Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan. Klippa: Mörk Real Betis og Atlético Real komst á toppinn í stutta stund með 2-1 sigrinum gegn Barcelona sem er tveimur stigum frá toppnum. Karim Benzema og Toni Kroos skoruðu mörk Real en Óscar Mingueza minnkaði muninn. Klippa: Mörkin úr El Clásico Nú þegar liðin eiga átta leiki eftir hvert horfa margir til leiksins á milli Barcelona og Atlético á Camp Nou laugardaginn 8. maí. Sá leikur gæti ráðið miklu í titilbaráttunni. Leikirnir sem liðin eiga eftir Atletico Madrid: Eibar (h), Huesca (h), Athletic Bilbao (ú), Elche (ú), Barcelona (ú), Real Sociedad (h), Osasuna (h), Real Valladolid (ú). Real Madrid: Getafe (ú), Cádiz (ú), Real Betis (h), Osasuna (h), Sevilla (h), Granada (ú), Athletic Bilbao (ú), Villarreal (h). Barcelona: Getafe (h), Villarreal (ú), Granada (h), Valencia (ú), Atlético Madrid (h), Levante (ú), Celta Vigo (h), Eibar (ú). Real Madrid þarf einnig að huga að Meistaradeild Evrópu en þar er liðið í ágætri stöðu gegn Liverpool eftir 3-1 sigur í fyrri leik liðanna. Liðin mætast á Englandi á miðvikudagskvöld. Börsungar eiga einnig möguleika á tveimur titlum á þessari leiktíð. Þeir leika úrslitaleik spænska bikarsins gegn Athletic Bilbao á laugardaginn. Spænski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Leik lokið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leik lokið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Elísabet tjáir sig: Grátlega nálægt draumnum í þrígang Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Sjá meira
Atlético hefur kastað frá sér öruggu forskoti á toppi deildarinnar og er aðeins stigi á undan Real Madrid, eftir 1-1 jafntefli við Real Betis í gær. Yannick Carrasco kom Atlético yfir en Tello jafnaði metin á 20. mínútu. Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan. Klippa: Mörk Real Betis og Atlético Real komst á toppinn í stutta stund með 2-1 sigrinum gegn Barcelona sem er tveimur stigum frá toppnum. Karim Benzema og Toni Kroos skoruðu mörk Real en Óscar Mingueza minnkaði muninn. Klippa: Mörkin úr El Clásico Nú þegar liðin eiga átta leiki eftir hvert horfa margir til leiksins á milli Barcelona og Atlético á Camp Nou laugardaginn 8. maí. Sá leikur gæti ráðið miklu í titilbaráttunni. Leikirnir sem liðin eiga eftir Atletico Madrid: Eibar (h), Huesca (h), Athletic Bilbao (ú), Elche (ú), Barcelona (ú), Real Sociedad (h), Osasuna (h), Real Valladolid (ú). Real Madrid: Getafe (ú), Cádiz (ú), Real Betis (h), Osasuna (h), Sevilla (h), Granada (ú), Athletic Bilbao (ú), Villarreal (h). Barcelona: Getafe (h), Villarreal (ú), Granada (h), Valencia (ú), Atlético Madrid (h), Levante (ú), Celta Vigo (h), Eibar (ú). Real Madrid þarf einnig að huga að Meistaradeild Evrópu en þar er liðið í ágætri stöðu gegn Liverpool eftir 3-1 sigur í fyrri leik liðanna. Liðin mætast á Englandi á miðvikudagskvöld. Börsungar eiga einnig möguleika á tveimur titlum á þessari leiktíð. Þeir leika úrslitaleik spænska bikarsins gegn Athletic Bilbao á laugardaginn.
Leikirnir sem liðin eiga eftir Atletico Madrid: Eibar (h), Huesca (h), Athletic Bilbao (ú), Elche (ú), Barcelona (ú), Real Sociedad (h), Osasuna (h), Real Valladolid (ú). Real Madrid: Getafe (ú), Cádiz (ú), Real Betis (h), Osasuna (h), Sevilla (h), Granada (ú), Athletic Bilbao (ú), Villarreal (h). Barcelona: Getafe (h), Villarreal (ú), Granada (h), Valencia (ú), Atlético Madrid (h), Levante (ú), Celta Vigo (h), Eibar (ú).
Spænski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Leik lokið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leik lokið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Elísabet tjáir sig: Grátlega nálægt draumnum í þrígang Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Sjá meira