Liverpool kom til baka og lagði Aston Villa Arnar Geir Halldórsson skrifar 10. apríl 2021 13:31 Úr leiknum í dag. vísir/Getty Gestirnir í Aston Villa komust í forystu á markamínútunni, þeirri fertugustu og þriðju, þegar Ollie Watkins afgreiddi boltann snyrtilega framhjá Alisson eftir sendingu frá John McGinn. Liverpool menn töldu sig hafa jafnað metin í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar Roberto Firmino batt endahnútinn á góða sókn en þegar sóknin var skoðuð af VAR var Diogo Jota dæmdur rangstæður í aðdraganda marksins. Aston Villa fór því með eins marks forystu í leikhléið. Roberto Firmino's equaliser for Liverpool is ruled out after Diogo Jota was deemed offside in the build-up#LIVAVL pic.twitter.com/R2EQzeuznJ— Amazon Prime Video Sport (@primevideosport) April 10, 2021 Mohamed Salah jafnaði metin fyrir Liverpool á 57.mínútu þegar hann fylgdi á eftir skoti Andy Robertson sem Emi Martinez hafði varið beint fyrir fætur Egyptans. Jurgen Klopp gerði sóknarsinnaðar breytingar á liði sínu þegar leið á síðari hálfleikinn þar sem Thiago, Sadio Mane og Xherdan Shaqiri komu inn af varamannabekknum. Sóknarþunginn skilaði sigurmarki á fyrstu mínútu uppbótartíma þegar Trent Alexander Arnold skoraði með góðu skoti utan vítateigs eftir snarpa sókn heimamanna. Lokatölur 2-1 fyrir Liverpool sem lyftir liðinu upp í fjórða sæti deildarinnar. Enski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti