Sérstök unaðsvernd er á kynlífstækjum Hermosa Hermosa.is 6. apríl 2021 08:50 Unaðsvernd Hermosa gerir viðskiptavinum mögulegt að kaupa vörur án áhættu. Hermosa.is er vefverslun vikunnar á Vísi. „
Við hjá Hermosa höldum áfram að einbeita okkur að því að veita framúrskarandi þjónustu og því byrjuðum við að bjóða upp á unaðsvernd,“ segir Kristín Björg Hrólfsdóttir, ein eigenda kynlífstækjaverslunarinnar Hermosa. En hvað felst eiginlega í „unaðsvernd“? „Unaðsverndin gerir viðskiptavinum mögulegt að kaupa vörur án áhættu. Ef þér líkar ekki varan eftir að hafa prófað hana þá getur þú skilað henni og fengið aðra sambærilega vöru í staðinn,“ útskýrir Kristín. „Venjulega er aðeins hægt að skila vöru ef hún er enn í óopnuðum umbúðum en með þessu viljum við koma enn betur til móts við okkar viðskiptavini. Við vöndum valið á þeim vörum sem við tökum inn til þess að vera viss um að bjóða bara upp á það besta,“ segir hún og tekur fram að öll raftæki í versluninni eru í að minnsta kosti tveggja ára ábyrgð og sum í lengri ábyrgð. „Við höfum nú haldið úti vefverslun hátt í 3 ár og það er gaman að segja frá því að bilanatíðni tækjanna er merkilega lítill,“ segir Kristín. Ekki bara kynlífsgræjur Vöruúrval Hermosa spannar ekki bara kynlífstæki heldur er þar einnig að finna tíðarvörur. „Við fórum nýlega að bjóða upp á tíðabikara sem ég mæli eindregið með. Tíðabikarar eru algjör snilld, ég hafði oft heyrt talað um þá áður en ég prufaði þá en aldrei pælt neitt sérstaklega í þeim,“ segir Kristín og dauðsér eftir að hafa ekki prófað bikarinn fyrr. „Það voru stór mistök að prufa þá ekki fyrr. Ég hef ekki tölu á hversu oft ég þurfti að skreppa í búðina af því að ég var að byrja á túr og átti ekki tappa eða dömubindi. Ég hef líka oft pælt í því hversu óumhverfisvænt það er að nota túrtappa og dömubindi endalaust. Tíðabikararnir eru lausn við þessu vandamáli. Þeir koma algjörlega í stað túrtappa og dömubinda og eru þægilegir, hagkvæmir og umhverfisvænir. Tíðabikararnir okkar eru gerðir úr mjúku silíkoni sem einnig er notað í lækningatæki. Bikarinn viðheldur náttúrulegri flóru líkamans vegna þess að hann tekur einungis við vökva en drekkur hann ekki í sig. Þetta kemur í veg fyrir ertingu og þurrk og tryggir náttúrulegt PH jafnvægi.“ Afsláttur af Fun factory og Satisfyer tíðabikurum Hermosa.is býður 20 % afslátt af öllum tíðabikurum frá 5. til 12. apríl. Við erum með tíðabikara bæði frá fun factory og Satisfyer. Hægt er að fá mismunandi stærðir af Fun factory bikurunum en Satisfier kemur í pakka með 2 stærðum. Einnig verða aðrar vörur á allt að 40% afslætti þessa daga, og má þar sem dæmi nefna hinar margverðlaunuðu vörur frá Zalo.
Kynlíf Vefverslun vikunnar Ástin og lífið Lífið Mest lesið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Lífið Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Lífið Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Áskorun Fleiri fréttir Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira