HBO með minnst þrjár nýjar þáttaraðir í vinnslu Samúel Karl Ólason skrifar 19. mars 2021 14:12 HBO vinnur að framleiðslu þriggja nýrra þáttaraða úr söguheimi Game of Thrones þáttanna. Það er til viðbótar við seríuna House of the Dragon, sem fjallar um Targaryen ættina og frumsýna á á næsta ári.
Samkvæmt frétt Deadline eru seríurnar þrjár kallaðar 9 Voygaes, Flea Bottom og 10.0000 Ships. Þættirnir 9 Voyages munu fjalla um hinn víðfræga sjógarp Coryls Velaryon, sem var einnig kallaður Sjávarsnákurinn. Hann fór í níu langar siglingar um heimshöf söguheims A Song of Ice and Fire á skipi sínu „Sjávarsnákurinn“. Með siglingum sínum jók Corlys auð sinn töluvert og naut einnig heimsfrægðar. Hann tók einnig virkan þátt í Drekadansinum svokallaða, borgarastyrjöld Targaryen ættarinnar. Í House of the Dragon er Corlys leikinn af Steve Toussaint. Sá sem stýrir þróunarvinnu 9 Voyages er Bruno Heller, sem er hvað þekktastur fyrir að vera annar mannanna á bakvið þættina Rome. Þættirnir 10.000 ships munu fjalla um stríðskonuna og drottninguna/prinsessuna Nymera, stofnanda konungsríkisins Dorne. Saga hennar gerist um þúsund árum fyrir sögu Game of Thrones þáttanna. Nymeria var prinsessa Rhoynarfólksins en eftir að Rhoyne var hernumið af Valiríu flúði hún til Dorne ásamt fjölmörgum þegnum sínum. Samkvæmt sögusögnum leiddi hún tíu þúsund skipa flota um langa og erfiða leið til Dorne. Það tók þau mörg ár að komast á leiðarenda eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir til að stofna nýtt ríki. Þegar þangað var komið giftist Nymeria Mors Martell og saman börðust þau um svo árabil til að ná yfirráðum í Dorne og mynda eina konungsríkið sem stóðst árásir Aegon the Conqueror og systra hans öldum síðar. Það er takmarkað mikið af upplýsingum sem liggja fyrir um Flea Bottom annað en nafnið. Nafnið er sama nafn og fátækrahverfi Kings Landing, höfuðborgar Westeros. Margt annað er og hefur verið í vinnslu Hollywood Reporter segir fregnir einnig hafa borist af því að mögulega sé verið að skoða að gera þætti úr sögum George R.R. Martin um Dunk og Egg. Þær bækur fjalla um riddarann Ser Duncan the Tall og skjaldsvein hans Egg. Egg varð svo seinna meir konungurinn Ageon Targaryen hinn fimmti. HR segir einnig til skoðunar að gera teiknimyndaþætti um ótilgreint efni úr þessum gríðarstóra söguheimi og svo verður að nefna að HBO tók einnig upp prufuþátt sem átti að gerast þúsundum ára fyrir Game of Thrones en ákveðið var að gera ekki þáttaröð úr því verkefni. Í september 2019 bárust þar að auki fréttir af því að HBO væri nálægt því að taka upp prufuþátt í mögulegri þáttaröð um Aegon og systur hans. Engar frekari fegnir hafa þó borist af því.
Bíó og sjónvarp Game of Thrones Mest lesið Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið „Fimm ár af allskonar og hamingjan er enn hér“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Einfalt og frísklegt útlit fyrir hlaupið Lífið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Fagnaði 35 árum í sólinni Lífið Fleiri fréttir Kynntu dagskrá RIFF 2024 Þakkaði fyrir sig á íslensku Shogun á spjöld sögunnar á Emmy verðlaunahátíðinni Snerting framlag Íslands til Óskarsins „Myndin byggir á minni eigin lífsreynslu“ Hlátur og grátur á Ljósvíkingum Ljósbrot valin besta norræna kvikmyndin Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr Svörtu söndum 2 Ældi næstum úr stressi á Cannes Myndaveisla: Rauður dregill og troðfullt hús á Ljósbroti Snerting hlaut eftirsótt verðlaun Snerting tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Jökull í Kaleo í Glæstar vonir Ljósbrot í forvali til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna Ólafur Darri og Hera Hilmars saman á skjánum í fyrsta sinn Lynch ólíklegur til að leikstýra aftur vegna Covidhræðslu Stórstjörnur í kvikmynd um fundinn í Höfða Sjá meira