Úttekt á samstarfi við frjáls félagasamtök Heimsljós 8. mars 2021 13:07 Viðkvæmustu hópar fátækra samfélaga njóta góðs af samstarfi við frjáls félagasamtök. gunnisal Samstarf utanríkisráðuneytisins við félagasamtök á sviði þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar hafa tekist vel en tækifæri eru enn til frekari umbóta. Niðurstöður nýrrar óháðrar úttektar á samstarfi utanríkisráðuneytisins við frjáls félagasamtök á sviði þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar benda til þess að margt hafi tekist vel í samstarfinu en jafnframt að frekari tækifæri séu til staðar til umbóta. Úttektin sýnir að rík áhersla hafi verið á að ná til þeirra allra fátækustu í verkefnum frjálsra félagasamtaka, auk þess sem samvinnan hafi verið sniðin að þörfum viðkvæmra hópa. Samstarf við frjáls félagasamtök hefur verið mikilvægur þáttur í þróunarsamvinnu Íslands um langt árabil. Frá árinu 2015 hafa framlög Íslands til frjálsra félagsamtaka vegna þróunarsamvinnu- og mannúðarverkefna numið tæplega 1,9 milljörðum króna. Hartnær 100 verkefni verið fjármögnuð, auk 19 mannúðarverkefna í gegnum rammasamning við Rauða krossinn á Íslandi. Átján íslensk frjáls félagasamtök hafa notið stuðnings til verkefna í 32 löndum frá árinu 2015. Ráðgjafafyrirtækið NIRAS lauk nýverið óháðri úttekt á samstarfinu sem beindist að vinnulagi, stefnumiðum og rammasamningi. Auk þess að benda á að margt hafi tekist vel í samstarfinu og tækifærum til umbóta segir í úttektinni að rammasamningur við Rauða krossinn á Íslandi hafi gefist vel. Því sé ástæða til að skoða frekari nýtingu rammasamninga í samstarfi ráðuneytisins við frjáls félagasamtök, bæði í mannúðaraðstoð og í þróunarsamvinnu. Í úttektinni eru auk þess gerðar tillögur um skýrari stefnumið og samráði um mótun þeirra, einföldun á vinnuferlum, samvinnu og samtali milli aðila á breiðari grunni, aukinnar samhæfingar og samfellu í starfi. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Hjálparstarf Félagasamtök Mest lesið „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Innlent Sex úr sömu fjölskyldu skotnir til bana Erlent Fasteignamat lækkar að raunvirði Innlent Furðar sig á því að þeir sem vildu minnka báknið fjölgi ráðum Innlent Deiliskipulag við Suðurlandsbraut, sundlaugar og fánar efst á dagskránni Innlent Vilja eyða óvissunni um bein Jónasar Innlent Brotist inn í Reykjabú og annað „manifestó“ skilið eftir Innlent Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Hjálparstarf Félagasamtök Mest lesið „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Innlent Sex úr sömu fjölskyldu skotnir til bana Erlent Fasteignamat lækkar að raunvirði Innlent Furðar sig á því að þeir sem vildu minnka báknið fjölgi ráðum Innlent Deiliskipulag við Suðurlandsbraut, sundlaugar og fánar efst á dagskránni Innlent Vilja eyða óvissunni um bein Jónasar Innlent Brotist inn í Reykjabú og annað „manifestó“ skilið eftir Innlent Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Innlent