Helgarveðrið með hagstæðasta móti Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 5. mars 2021 07:43 Það er spáð ágætis veðri um helgina. Vísir/Vilhelm Í dag er útlit fyrir sunnan fimm til tíu metra á sekúndu með skýjuðu veðri og lítilsháttar rigningu af og til en á Norður- og Austurlandi verður þurrt og bjart. Hiti verður á bilinu tvö til sjö stig.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þar segir jafnframt að í kvöld og nótt bæti í úrkomu á landinu en á morgun dragi svo úr henni aftur. Það verði því meira og minna þurrt á stórum hluta landsins á morgun og vindur með hægasta móti. „Á sunnudag er síðan áfram hægviðri í kortunum og yfirleitt þurrt og einnig gæti sólin náð að skína nokkuð víða. Hiti breytist lítið og verður á bilinu 2 til 7 stig yfir daginn. Það má því segja að helgarveðrið sé með hagstæðasta móti miðað við árstíma og um að gera að njóta meðan er,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu: Suðlæg átt 5-10 m/s. Lítilsháttar rigning í dag, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Bætir í rigningu á Suður- og Vesturlandi í kvöld. Hiti 2 til 7 stig. Suðlæg eða breytileg átt 3-8 á morgun. Dálítil væta á köflum og hiti 2 til 6 stig, en svolítil él um landið norðaustanvert og hiti um frostmark. Á laugardag: Breytileg átt 3-8 m/s og víða dálítil væta, en þurrt að kalla síðdegis. Hiti 1 til 6 stig. Austan 5-10 og él um landið norðaustanvert með hita um frostmark. Á sunnudag: Hæg breytileg átt, þurrt veður og bjart með köflum. Hiti 1 til 6 stig. Suðaustan 5-10 og smáskúrir sunnanlands seinnipartinn. Á mánudag: Suðlæg átt 5-13 m/s og rigning eða slydda með köflum, en úrkomulítið norðaustanlands fram á kvöld. Hiti 0 til 5 stig. Á þriðjudag: Austlæg átt og dálitlir skúrir eða él í flestum landshlutum. Hvessir á landinu um kvöldið með rigningu suðaustantil. Hiti um og yfir frostmarki.
Veður Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira