Stórtónleikar Skunk Anansie færðir fram í nóvember Twe Live 24. febrúar 2021 16:50 Tónleikar Skunk Anansie sem áttu að fara fram þann 5. júní í Laugardalshöll færast til 6. nóvember. Miðarnir gilda á nýja dagsetningu.
Fréttatilkynning frá Twe Live: Í ljósi þeirrar óvissu sem COVID-19 veldur okkur öllum hefur sú ákvörðun verið tekin að færa tónleika Skunk Anansie, sem vera áttu þann 5. júní til laugardagsins 6. nóvember. Miðarnir þínir gilda sjálfkrafa áfram á nýrri dagsetningu og þú þarft ekkert að aðhafast frekar. Ef ný dagsetning hentar alls ekki geta miðaeigendur óskað eftir endurgreiðslu með því að senda tölvupóst á info@tix.is innan 14 daga frá og með deginum í dag, það er í síðasta lagi miðvikudaginn 10. mars 2021. Athugið að ef greitt var með greiðsluappi (Aur, Kass eða Síminn Pay) eða með ferðagjöf stjórnvalda þarf að senda reikningsupplýsingar með. Við hjá TWE live sem stöndum að tónleikunum værum ótrúlega þakklát ef miðaeigendur væru til í að halda miðum sínum á nýrri dagsetningu og styðja þannig við viðburðahald á Íslandi, sem hefur átt undir högg að sækja síðustu mánuði. Salan á tónleikana hefur gengið vel þrátt fyrir þessa skrítnu tíma og er stúkan að verða uppseld. Miðasala fer fram á Tix.is. Tvö verðsvæði eru í boði: Stæði: 9.990 kr. (fremst við svið) og stúka: 13.990 kr. (númeruð sæti, stúka). Athugið að 18 ára aldurstakmark er á tónleikana. Hlökkum til að sjá ykkur í brjáluðu stuði laugardagskvöldið 6. nóvember 2021. Rifu þakið af Laugardalshöll 1997 Brit-rokksveitin Skunk Anansie hefur beðið eftir rétta tækifærinu til að heimsækja Ísland aftur, en sveitin mun halda tónleika í Laugardalshöll í tilefni af 25 ára afmælisári sínu. Það verður að teljast sannkallaður hvalreki fyrir tónlistarunnendur á Íslandi að Brit-rokksveitin Skunk Anansie sé á leiðinni til landsins aftur, en sveitin lék fyrir troðfullu húsi í Laugardalshöll árið 1997 á einum bestu tónleikum sem haldnir hafa verið í Höllinni. Meðlimir Skunk Anansie hafa beðið eftir rétta tækifærinu til að heimsækja Ísland aftur og nú er komið að því. Sveitin fagnar 25 ára starfsári sínu með plötunni 25live@25 og hugðist einnig halda tónleika víðs vegar um Evrópu 2020. Tónleikarnir færast allir til ársins 2021 vegna kórónuveirufaraldursins, auk þess sem nýjum dagsetningum er bætt við vegna mikillar eftirspurnar, meðal annars í O2 tónleikahöllinni í London í Bretlandi. Söngkonan Skin hefur einnig gefið út endurminningar sínar, It Takes Blood And Guts, sem hún skrifar ásamt vinkonu sinni og blaðamanni, Lucy O-Brien. Bókin hefur hlotið góða dóma. Árið 2019 gaf Skunk Anansie út lagið, What You Do For Love, sem var fyrsta nýja efnið frá þeim í þrjú ár. Laginu var síðan fylgt eftir með laginu, This Means War, og myndbandi þess sem tekið var upp á 800 þúsund manna tónleikum í Póllandi. Það er því til mikils að hlakka til á tónleikum Skunk Anansie þann 6. nóvember, þar sem sveitin mun fara yfir 25 ára feril sinn og sín bestu og vinsælustu lög. Skunk Anansie þykir frábær á tónleikum, eins og sannaðist í Höllinni fyrir 23 árum og þykja þeir tónleikar vera einir þeir bestu sem hafa verið settir upp þar svo þétt er sveitin, rödd Skin er ótrúleg sem og sviðsframkoma sveitarinnar.
Tónlist Reykjavík Mest lesið Allt ætlaði um koll að keyra í Borgarleikhúsinu Lífið Tók sex ólíka stera fyrir hjartastoppið: „Þannig ég segi nei við sterum“ Lífið Segir Candy hafa séð að faðir hans væri „skrímsli“ á undan öðrum Lífið Fréttatía vikunnar: Friðlýsing, frumsýning og handtaka Lífið Glæsibústaðir yfir hundrað milljónum Lífið Balta bregst bogalistin Gagnrýni Glæsihöll Livar og Sverris á Arnarnesi til sölu Lífið Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Lífið samstarf Gamla TR-húsinu umbreytt í Hlemm.haus: „Augljóst að þörfin var gríðarleg“ Menning Eldgos og elskhugar á frumsýningu Eldanna Lífið Fleiri fréttir Opnunarhátíð í Ríteil Kids „við erum að drukkna í fötum“ Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Ný svefnlína sem hjálpar þér að sofna, sofa og vakna hress! Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Er hárið skemmt eða bara þurrt? Opna Preppbarinn í Keflavík og bjóða 50% afslátt Stjörnum prýdd dagskrá Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Víkurverk hefur allt fyrir ferðalagið og meira til Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Sjá meira