Marion Jollés er eiginkona Romain en í Barein kappakstrinum klessti hann á handrið á 220 kílómetra hraða. Bíllinn varð alelda og Romain var fastur inn í bílnum en á ótrúlegan hátt náðu starfsmenn honum út úr bílnum, til allrar lukku.
„Þeir sýndu ekkert. Ég var nánast ekkja í tvær mínútur og 43 sekúndur,“ sagði Marion í samtali við Le Figaro er hún rifjaði upp atvikið skelflilega. Börn þeirra þrjú; Sascha sjö ára, Simon fimm ára og Camille þriggja ára fylgdust einnig með.
Hún segir að lýsandinn, Julien Febreaus, hafi hjálpað henni í gegnum þessar tæpu þrjár mínútur.
🗨️ "10 raisons qui auraient pu conduire à sa mort"
— Sport Reporter (@Sport__Reporter) February 18, 2021
🗨️ "C'est pas un miracle, c'est une succession de miracles"
Bahreïn, 29 novembre 2020. @RGrosjean s'encastre dans le rail avec une puissance inouïe 😱
"Retour de flammes", c'est samedi 20 février à 13H50 sur @canalplus 🔜 pic.twitter.com/LDhteyoKfn
„Hann var svo rólegur. Ég er ekki viss um að ég hafi sagt honum þetta en hann hjálpaði mér í gegnum þetta. Því meira sem hann talaði, því meira hjálpaði það mér.“
Romain hefur sjálfur sagt eftir atvikið að hann hefði verið búinn að sætta sig við dauðann.
„Hausinn á mér hafði sætt mig við þetta. Að nú væri þetta dagurinn sem ég myndi deyja. Hvað brennur fyrst? Verður þetta vont? En svo hugsaði ég um börnin mín og að ég ætlaði ekki að deyja. Ég varð að sjá þau aftur.“
Samningi Romain við Formúlu liðið Haas var ekki framlengdur eftir síðustu leiktíð en hann keyrir nú í IndyCar.