Er þetta skrítnasta tilhlaup sem sést hefur? Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. febrúar 2021 13:31 Rony svekktur eftir að hafa klúðrað spyrnu sinni í vítakeppni í leik Palmeiras og Al Alhy í gær. getty/Colin McPhedran Spyrna Ronys í vítakeppni í leik Palmeiras og Al Alhy um 3. sætið á HM félagsliða hefur vakið mikla athygli, þá aðallega tilhlaup leikmannsins.
Rony tók fyrstu spyrnu Palmeiras og þurfti að skora til að jafna fyrir brasilíska liðið. Það mistókst hrapallega. Rony tók sér góðan tíma áður en hann hóf tilhlaupið að boltanum. Það virtist svo taka heila eilífð enda stoppaði hann, tók lítil hænuskref og hoppaði loks áður en hann sparkaði í boltann. Spyrnan var kraftlaus og Mohamed El Shenamy, markvörður Al Alhy, átti ekki í miklum vandræðum með að verja hana. Spyrnuna má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Skrítið tilhlaup leikmannas Palmeiras Spyrna Ronys, eða aðhlaupið öllu heldur, minnti um margt á svipuð tilþrif Simones Zaza í vítakeppni í leik Ítalíu og Þýskalands í átta liða úrslitum á EM 2016. Rony var reyndar ekki eini leikmaðurinn sem fór illa að ráði sínu í vítakeppninni því alls fóru fimm víti í súginn, þrjú hjá Palmeiras og tvö hjá Al Alhy sem fagnaði sigri, 3-2, og bronsverðlaunum á HM félagsliða. Bayern München varð heimsmeistari félagsliða eftir 1-0 sigur á Tigres í gær. Benjamin Pavard skoraði eina mark leiksins. Bayern er því handhafi allra sex titlanna sem þeir geta unnið. HM féalgsliða fór að þessu sinni fram í Doha í Katar. Keppni hófst á fimmtudaginn í síðustu viku og lauk í gær.
Grín og gaman Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti „Það var ekkert í heiminum að fara breytast“ Sport Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Enski boltinn „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti Fleiri fréttir Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Þú ert farinn að verða þybbinn“ „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit „Þetta var skandall“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta „Framtíð fótboltans er í góðum málum með þennan gutta“ „Þeir geta tekið þetta með sér“ Oliver keyptur til KA Gæti misst fjóra leikmenn í bann og vill breyta reglunum Real Madrid goðsögn fallin frá Ekitike sleit hásin „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Gylfi eftirlitsmaður hjá Arsenal í Meistaradeildinni „Svo margir dómar hafa fallið gegn okkur“ Atlético Madrid í undanúrslit eftir mikla dramatík PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Isak byrjar hjá Liverpool en Salah er aftur á bekknum Hættur að þjálfa Messi fjórum mánuðum eftir titilinn Uppgjörið: Ísland - Úkraína 1-0 | Stelpurnar okkar nældu í þrjú stig Thelma Karen í byrjunarliðinu „Þau gefa okkur ótrúlega mikið með því að sýna okkur áhuga“ Iraola yfirgefur Bournemouth Vill sjá styttri leiki með engum spjöldum og fleiri mörkum „Trúum því að við getum gert eitthvað sérstakt“ Sjá meira