„Ég vil ekki vera að predika neitt en vil leyfa fólki að hugsa og horfa“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 30. janúar 2021 09:01 Ragnar Axelsson fyrir framan eina af uppáhalds myndunum sínum á sýningunni Þar sem heimurinn bráðnar. Vísir/Vilhelm Í dag opnar sýningin Þar sem heimurinn bráðnar eftir Ragnar Axelsson í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi. Sýningin opnar klukkan tíu en engin formleg opnun var að þessu sinni vegna fjöldatakmarkana.
Á sýningunni Þar sem heimurinn bráðnar er hægt að líta augum 80 ljósmyndir eftir RAX. Myndirnar spanna um 35 ára tímabil af ferli hans en elsta myndin á þessari sýningu, af Axel á Gjögrií bát, var tekin árið 1986. Sumar ljósmyndanna eru að birtast núna í fyrsta sinn opinberlega. „Þetta er svona ferðalag. Byrjar á fjöllunum þegar maður gengur inn í salinn, Roscoe fjöll sem að eru ein fallegustu fjöll í heimi. Þannig byrjar ævintýrið,“ segir RAX um uppsetningu sýningarinnar. „Svo kemur maður inn í lífið í þorpunum og hjá hundunum. Íslensku jöklarnir eru á veggjunum sitthvorum megin við. Þegar þú lest vegginn þá sérðu hann að bráðna, næstsíðasta myndin er eins og spjóti sé stungið upp í jökulinn og honum sé að blæða út.“ Svo taka við myndir frá lífinu af Íslandi. Af fólki, dýrum, mannlífi og náttúru. Vekur upp spurningar „Meginþemað er Grænland og svo förum við í gegnum veðrið, storminn og endum þar sem er komin smá óreiða og drungi. Endamyndin er af firði sem var frosinn fyrir 25 árum og þú fórst um á hundasleða og nú fer maður þar um á bát. Hvert er þetta að fara? Þetta vekur upp spurningar.“ RAx segir þó að hann sé alls ekki með neinn áróður með þessari sýningu. „Ég vil ekki vera að predika neitt en vil leyfa fólki að hugsa og horfa.“ Á sýningunni Þar sem heimurinn bráðnar má finna ljósmyndir sem Ragnar Axelsson, RAX, hefur tekið á síðustu 35 árum.RAX RAX segir að fólk sé vissulega ekki sammála um orsakir breytinganna en það geti samt allir gestir sýningarinnar velt þessu fyrir sér. „Það er að hlýna hvort sem okkur líkar það betur eða verr, jörðin er í þeim fasa. En menn þurfa að halda haus og mega ekki alveg missa sig. Það eru tækifæri og fólk þarf að eiga möguleika á að lifa.“ Fær illt í fingurinn þegar hann sér myndina Hann á erfitt með að velja eina uppáhalds mynd þar sem það breytist reglulega. „Þetta er eins og að eiga uppáhalds lag á plötu, svo þolir þú það ekki og fílar næsta og svo kemur það aftur.“ Honum þykir samt einstaklega vænt um tvær myndir sem hann tók af veiðimönnum á Grænlandi í miklum kulda. Frostið var mikið og tók RAX af sér vettlingana í augnablik á meðan hann myndaði. Fingurnir frusu án þess að hann yrði þess var og hefur hann enn ekki fengið fulla tilfinningu í þumalfingur eftir þessa ferð. Myndina af þessum veiðimanni á Grænlandi tók RAX fyrir tveimur árum og fingurnir á honum frusu enda var meira en fjörutíu stiga frost þennan dag. Hann fær enn illt í fingurinn þegar hann skoðar myndina.RAX „Þetta voru myndir sem ég varð að ná. Þegar maður er að segja þessa sögu, var ég heppinn að lenda í eins og þessu veðri sem skellur á.“ RAX viðurkennir að hann fái enn illt í fingurinn þegar hann skoðar myndina af veiðimanninum, en segir samt að þetta ljósmyndaævintýri í meira en fjörtíu stiga frosti hafi verið þess virði. Listasafninu er nú skipt í nokkur sóttvarnarhólf og geta tuttugu einstaklingar heimsótt sýninguna í einu. Sýningarstjóri er Einar Geir Ingvarsson. Allar myndirnar á sýningunni eru til sölu í takmörkuðu upplagi. Frekari upplýsingar má nálgast á vef ljósmyndarans eða hjá útgáfu hans, Querndu. Dökka herbergið í uppáhaldi Hluti myndanna er sýndur í dökkmáluðum hliðarsal, þar sem dulúðin og stemningin á myndum ljósmyndarans verða enn magnaðri. Einar Geir sýningarstjóri er einnig hönnuður bóka ljósmyndarans og segir hann að markmiðið hafi verið að skapa svipaðar aðstæður og hann skoðar venjulega myndir RAX í. „Það er alltaf frekar dimmt á skrifstofunni minni. Þegar ég fæ sendar nýjar myndir frá RAX til að skoða þá er það alltaf jafn stórkostlegt. Það er einfaldlega gjöf.“ Hann vildi því leyfa sýningargestum að upplifa myndirnar með sama hætti, í þögninni og kyrrðinni þar sem ekkert truflar. Myndin af þessum veiðihundi í kuldanum á Grænlandi er í sérstöku uppáhaldi hjá Einari Geir sýningarstjóra sýningarinnar. Hana má finna í gráa salnum.RAX Óður til sleðahundsins Á sýningunni má meðal annars sjá nokkrar myndir úr bókum ljósmyndarans eins og Andlit norðursins, Fjallaland, Jöklar og einnig nýjustu bók hans Hetjur Norðurslóða. Fjallað hefur verið um bókina af mörgum af stærstu fjölmiðlum heims síðustu vikur eins og Guardian, The Times og fleiri. Hetjur Norðurslóða er óður RAX til grænlenska sleðahundsins og sambandsins sem myndast hefur milli manns og hunds í veiðimannasamfélaginu á Grænlandi. Hann hefur ferðast um Grænland í um 40 ár og hefur á þeim árum safnað sögubrotum af harðri lífsbaráttu Grænlendinga í sambýli við besta vin mannsins. Margar af myndum sýningarinnar eru því teknar á Grænlandi en einnig eru myndir sem RAX hefur tekið á Íslandi í gegnum árin. Bókinn Jökull var óður hans til jökla á Íslandi og á sýningunni eru bæði myndir úr þeirri bók og áður óbirtar myndir hans af jöklum. RAX ólst upp í grennd við jökla og hefur flogið vél sinni í ótal skipti yfir hjarnbreiður þeirra. Ragnar Axelsson ljósmyndari ásamt Einari Geir Ingvarsson hönnuður og sýningarstjóri sýningarinnar.Allar myndirnar á ljósmyndasýningunni eru til sölu og sumar þeirra er hægt að kaupa í mismunandi stærðum.Vísir/Vilhelm Umhverfi sem er sífellt að breytast „Í meira en 40 ár hefur Ragnar Axelsson myndað fólk, dýr og landslag afskekktustu svæða norðurslóða, þar með talið hér á landi, í Síberíu og á Grænlandi. Hann vinnur nú að því að stækka þetta svæði og ferðast mjög víða í leit sinni að myndefni. Í ljósmyndaverkum sínum og ljósmyndabókum endurspeglar hann óvenjuleg tengsl íbúa norðurslóða við öfgakennt umhverfi sitt – tengsl sem eru nú stöðugt að breytast vegna breytinga á loftslagi. Ragnar skrásetur hvernig þessar breytingar hafa áhrif á líf fólks og dýra og hvaða ógn býr að baki hlýnun jarðar,“ segir meðal annars um sýninguna á vef Listasafnsins. „Í gegnum myndavélarlinsuna sér Ragnar og varðveitir frásögn sem tekur örum breytingum eftir því sem hefðir norðurskautsins og umhverfi þess dregst meira saman. Hér, í tilkomumiklu umhverfi fjalla, jökla og þorpa, blasa við þrír heimar; fólkið, dýrin og síbreytilegt landið sem þau byggja.“ Nánar má lesa um sýninguna hér. RAX hefur sagt sögurnar á bak við margar af myndunum á sýningunni í þáttunum RAX Augnablik hér á Vísi og á eftir að segja frá enn fleiri myndum sýningarinnar á næstu mánuðum. RAX Augnablik birtast á Vísi alla sunnudaga og fara samhliða því inn á Stöð 2+ (áður Maraþon). Hér fyrir neðan má sjá nokkra þætti sem fjalla um myndir á sýningunni Þar sem heimurinn bráðnar. Alla þættina af RAX Augnablik má finna hér á Vísi.
RAX Ljósmyndun Tengdar fréttir Þakklátur fyrir að fá að segja sögurnar á bak við augnablikin Ragnar Axelsson ljósmyndari, betur þekktur sem RAX, segist vera smámunasamur og fer oft margar ferðir á sama staðinn til að ná réttu myndinni. Í nýjum þáttum segir hann frá sínum þekktustu ljósmyndunum og öllu því sem hann lagði á sig til þess að fanga þau augnablik. 23. ágúst 2020 10:45 RAX Augnablik: „Þegar hann er í sínum versta ham getur hann sprengt hús í tætlur“ „Piteraq þýðir sá sem ræðst á þig og hann verður til inni á ísnum, inni á jökli og rennur niður þrjú þúsund metra inn að austurströndinni eins og ósýnilegt stórfljót,“ segir Ragnar Axelsson. 24. janúar 2021 07:01 „Ég var alveg viss um að ég myndi deyja næst“ „Mér líður alveg bærilega en þetta er búið að taka ótrúlega langan tíma,“ segir Pétur Reynisson, sem nýlega lauk endurhæfingu á Reykjalundi vegna Covid-19 eftirkasta. Pétur missti báða foreldra sína í vegna Covid-19 og voru þau fyrst til að falla frá vegna faraldursins hér á landi. 23. janúar 2021 07:00 Mest lesið Vængir, bjór og lófaklapp þegar Kaninn var forsýndur Lífið Flaug alla leið frá Ástralíu til að heimsækja Eiðistorg Lífið Jay Leno illa leikinn og með lepp Lífið Óhugnanlegt neyðarlínusímtal: „Hann var bara dáinn“ Lífið Fréttatían: Gömul mannshvörf, rukkanir og gos Lífið Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Tónlist „Þetta var það erfitt, að við vorum öll dofin“ Lífið Datt í miðri sýningu á Ellý: „Eitt lélegasta fall leikhússögunnar“ Lífið Stúlkan með nálina: Hver gerir svona kvikmynd? Gagnrýni Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Fleiri fréttir Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? „Alltaf að fylgja hjartanu í stað þess að velja einföldu leiðina“ Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Sjá meira
Þakklátur fyrir að fá að segja sögurnar á bak við augnablikin Ragnar Axelsson ljósmyndari, betur þekktur sem RAX, segist vera smámunasamur og fer oft margar ferðir á sama staðinn til að ná réttu myndinni. Í nýjum þáttum segir hann frá sínum þekktustu ljósmyndunum og öllu því sem hann lagði á sig til þess að fanga þau augnablik. 23. ágúst 2020 10:45
RAX Augnablik: „Þegar hann er í sínum versta ham getur hann sprengt hús í tætlur“ „Piteraq þýðir sá sem ræðst á þig og hann verður til inni á ísnum, inni á jökli og rennur niður þrjú þúsund metra inn að austurströndinni eins og ósýnilegt stórfljót,“ segir Ragnar Axelsson. 24. janúar 2021 07:01
„Ég var alveg viss um að ég myndi deyja næst“ „Mér líður alveg bærilega en þetta er búið að taka ótrúlega langan tíma,“ segir Pétur Reynisson, sem nýlega lauk endurhæfingu á Reykjalundi vegna Covid-19 eftirkasta. Pétur missti báða foreldra sína í vegna Covid-19 og voru þau fyrst til að falla frá vegna faraldursins hér á landi. 23. janúar 2021 07:00