Tónlist

Seyðis­fjarðar­pla­ylisti Sexy Lazer

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Jón Atli hefur komið víða við í tónlistarsköpun sinni, t.a.m. sem hluti sveitanna Human Woman, The Mansisters og Hairdoctor.
Jón Atli hefur komið víða við í tónlistarsköpun sinni, t.a.m. sem hluti sveitanna Human Woman, The Mansisters og Hairdoctor. Rasmus Littauer

Verkefninu Saman fyrir Seyðisfjörð var nýverið hrundið af stað til að vekja athygli á harmleiknum sem þar ríkir í kjölfar aurskriðna sem féllu á bæinn á síðustu vikum. Tónlistarmaðurinn Jón Atli Helgason, eða Sexy Lazer, gerði sérstakan lagalista fyrir verkefnið, sem kemur í stað föstudagsplaylista þessa vikuna.

Nokkrir velunnarar Seyðisfjarðar standa fyrir verkefninu, en í því taka Rauði krossinn og fjöldi þekktra listamanna höndum saman. Dagana 25.-31. janúar stendur yfir rafræn listahátíð á heimasíðu verkefnisins samanfyrirseydisfjord.info og má nálgast framlög listamannanna þar á meðan, eða þar til á sunnudaginn.

Hægt er að styrkja samfélagið á Seyðisfirði um 2900 krónur með því að senda skilaboðin HJALP í númerið 1900, eða inni á þessari síðu

Framlag hárlæknisins og -tæknisins knáa Jóns Atla, sem þeytir skífum og gerir músík undir nafninu Sexy Lazer samhliða hárskurðinum, var lagalisti sem hann setti saman fyrir Seyðisfjörð. Hann birtist upprunalega á vefsíðu verkefnisins og er titlaður „For Seydis“

Jón Atli segir að lagalistinn sé tilfinningalisti. „Búinn til fyrir þá sem standa í uppbyggingu Seyðisfjarðar. Kvíði, hlýja, reiði, von, tilhlökkun, vonleysi, söknuður, sorg og Á.S.T. (áunnin sönn tilfinning eins og Gabríella Friðriksdóttir segir).“

„Ég elska Seyðisfjörð og sendi mína hlýjustu strauma til allra þar og hlakka til að koma aftur í faðm fjarðar. KNÙS. Sexy Lazer.“

Á meðal þeirra sem taka þátt í listahátíðinni eru Ásgeir, GDRN, Bríet, systkinin sillus og Hermigervill í samstarfi, post-ballsveitin Bjartar Sveiflur, Sykur, Halldór Eldjárn, Hatari, Vök, JFDR, Cyber, Samantha Shay & Andrew Thomas Huang, og margir fleiri.

Enn er hægt að nálgast öll framlög listamanna sem birt hafa verið þessa vikuna, og eins og áður segir verður það einungis hægt þangað til á sunnudag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.