Lífið

Stjörnulífið: Útskrift, afmæli og bóndadagurinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
sfdfhsfdh

Stjörnulífið þessa vikuna litast töluvert af bóndadeginum sem var haldinn hátíðlegur á föstudaginn en þá fengu bændur landsins heldur betur dekur frá mökum sínum.

Kristbjörg Jónasdóttir fór með eiginmann sinn út að borða í Katar til að halda upp á bóndadaginn. 

Friðrik Dór Jónsson birti fallega mynd af eiginkonu sinni Lísu Hafliðadóttur sem varð þrítug á dögunum. 

„Lísa my love er þrítug í dag. Playlistinn „lög um Lísu“ væri ansi sterkur þó ég segi sjálfur frá.

Ég á henni allt að þakka. Lovvjú beibí, þú ert best.“

 Leikkonan Kristín Pétursdóttir er farin að hugsa um vorið. 

„Vorið kemur, heimur hlýnar,“ skrifar Kristín við fallega sumarmynd af sér í pottinum.

Jón Jónsson sáttur að fá að koma fram með kónginum og prinsinum, þeim Bubba Morthens og Auður. 

 Gummi Kíró og Lína Birgitta skelltu sér í gönguferð um miðbæinn og litu vel út. 

Sunneva Einarsdóttir áhrifavaldur birti fallega mynd á gramminu.

Róbert Wessmann birti fallega mynd af unnustu sinni Ksenia Shakhmanovu en hún átti afmæli á dögunum og er forstjóri Alvogen greinilega stoltur af henni.

 Knattspyrnumaðurinn Arnór Sigurðsson hefur lokið við stúdentprófið og fagnaði því, eðlilega. 

 Björn Ingi Hrafnsson fékk bóndadagsdekur frá dóttur sinni.

 Eva Ruza heldur betur stolt af sínum bónda. 

 Manuela Ósk Harðardóttir fagnaði bóndadeginum í faðmi bóndans, Eiði Birgissyni. 

Móeiður Lárusdóttir birti fallega mynd af sér með bóndanum sínum Herði Björgvini Magnússyni þegar þau tvö nutu lífsins á Mykanos í Grikklandi.

Ein rándýr af stjörnulögmanninum Vilhjálmi Hans Vilhjálmssyni. 

 Crossfit-stjarnan Katrín Tanja fór með fjölskylduna í myndatöku.

„Þessi kúreki á afmæli í dag. Hann er mōgnuð persóna og ég elska hann,“ skrifar Svala Björgvins en Kristján Einar kærasti hennar átti afmæli á dögunum.

„Á bóndegi fyrir 15 árum fékk ég sms (já, við erum 107 ára) sem var svohljóðandi: „Hérna, erum við saman eða? Það eru allir að spyrja mig út í það og svona sko ... þú veist. Jájájá, elskan mín. Við erum saman. Og aldrei verið betri.,“ skrifar Guðrún Veiga sem fagnaði bóndadeginum með eiginmanninum en þau byrjuðu greinilega saman á bóndadeginum fyrir fimmtán árum.

Sunnudagskósýgallinn hjá Hönnu Rún Bazev. 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.