Lífið

Netverjar grínast áfram með Bernie: „Ég var bara að reyna að halda á mér hita“

Samúel Karl Ólason skrifar
Netverjar hafa sett Bernie í hinar ýmsu aðstæður.
Netverjar hafa sett Bernie í hinar ýmsu aðstæður.

Öldungadeildarþingmaðurinn Bernie Sanders vakti gífurlega mikla athygli á innsetningarathöfn Joe Biden á miðvikudaginn. Þar var hann klæddur í þykka úlpu og ullarvettlingum sem gerðir voru úr endurunnum efnum.

Þótti hann sérstaklega alþýðlegur, eins og Sanders einum er lagið. Mynd af honum sitjandi í þessum klæðnaði hefur farið eins og eldur í sinu um internetið.

Netverjar hafa haft sérstaklega gaman af því að klippa Sanders inn í aðrar myndir og jafnvel myndbönd og hafa slíkar myndir flætt yfir internetið.

Sjá einnig: Grínarar á yfirsnúningi með Bernie Sanders

Sanders var gestur Seth Meyers á dögunum og spurði hann þingmanninn út í myndirnar. Sanders sagðist bara hafa verið að reyna að halda á sér hita og fylgjast með athöfninni. Þá lofaði hann konuna sem gerði vettlingana, Jen Ellis.

Vettlingar Sanders hafa vakið gífurlega athygli en þeir eru gerðir úr ónýtum ullarpeysum, flís og endurunnu plasti úr flöskum. Jen Ellis, konan sem gerði þessa vettlinga Sanders, segist hafa fundið fyrir gífurlegum áhuga undanfarna daga en hún hafi ekki tök á því að gera fleiri.

Hér má sjá stutt viðtal sem CNN tók við hana.

Miðillinn GQ hefur bent lesendum sínum á íslenska ullarvettlinga sem hægt sé að kaupa í staðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.