Mourinho refsar Lamela fyrir að brjóta sóttvarnarreglur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. janúar 2021 10:30 José Mourinho ætlar ekki að nota Erik Lamela gegn Brentford annað kvöld. getty/Tottenham Hotspur FC José Mourinho, knattspyrnustjóri Tottenham, ætlar ekki að nota Erik Lamela í leiknum gegn Brentford í undanúrslitum enska deildabikarsins eftir að Argentínumaðurinn braut sóttvarnarreglur um jólin.
Á dögunum birtist mynd frá gleðskap þar sem Tottenham-mennirnir Lamela, Giovani Lo Celso og Sergio Reguilón og Manuel Lanzini, leikmaður West Ham, gestir. Á myndinni voru fimmtán fullorðnir og þrjú börn sem er klárt brot á ströngum sóttvarnarreglum í Bretlandi. Lamela lék ekki með Tottenham í 3-0 sigrinum á Leeds United í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn og Mourinho segir að hann muni heldur ekki nota hann í leiknum gegn Brentford á morgun. „Ég get ekki valið hann,“ svaraði Mourinho er hann var spurður hvort Lamela yrði með gegn Brentford. „Það er ekki mitt að segja ykkur af hverju en hann getur ekki spilað gegn Brentford.“ Mourinho lýsti yfir vonbrigðum sínum með sóttvarnarbrot þremenningana. Hann virtist sérstaklega sár út í Reguilón en hann færði spænska bakverðinum mat á jóladag þar sem hann hélt að hann yrði einn á jólunum. „Hann var ekki einn eins og allir sáu og við sem félag erum vonsvikin því leikmennirnir hafa fengið allar upplýsingar og fræðslu sem til þarf. Við erum ekki sátt. Þetta var óvænt og neikvæð uppákoma.“ Lamela baðst afsökunar á því að hafa verið í jólapartíinu, sagðist sjá mikið eftir því og hreinlega skammast sín.
Enski boltinn Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Fleiri fréttir Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjá meira