Handtekinn fyrir að búa í Disney World Samúel Karl Ólason skrifar 2. maí 2020 22:46 Disney World hefur skemmtigarðinum í Flórída var lokað í mars. AP/Joe Burbank
Lögreglumenn í Flórída handtóku í vikunni mann sem hafði komið sér fyrir á eyju í Disney World og ætlaði að búa þar um tíma en Disney World er lokað vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar. Maðurinn lýsti eyjunni sem „paradís“ og hafði í raun búið á eyjunni frá því á mánudaginn eða þriðjudaginn. Samkvæmt AP fréttaveitunni sagðist maðurinn hafa ætlað að vera á eyjunni í viku. Hinn 42 ára gamli Richard McGuire sagðist ekki hafa vitað að um einkaland væri að ræða, þrátt fyrir fjölmörg skilti þar sem það kemur fram. Starfsmaður Disney hafði séð McGuire notast við bát fyrirtækisins og var lögregla kölluð til að leita að honum. McGuire sagðist ekki hafa verið var við leitina, þrátt fyrir að fjölmargir lögreglumenn hafi tekið þátt í henni og gengið um eyjuna og sömuleiðis leitað úr lofti á þyrlu. McGuire sagðist hafa verið sofandi og því hafi hann ekki orðið var við umstangið. Ekki liggur fyrir hve langan tíma leitin tók en McGuire fannst sama dag og áðurnefndur starfsmaður tilkynnti hann til lögreglu. USA Today segir McGuire ekki vera fyrstan til að laumast út í Disney World frá því garðinum var lokað í mars. McGuire hefur verið bannaður í Disney World og má aldrei snúa þangað aftur, jafnvel þó garðurinn hafi verið opnaður.
Bandaríkin Disney Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira