Jól

Klassískt lag úr Mamma Mia! léttir lundina

Tinni Sveinsson skrifar
Jóhanna Vigdís Arnardóttir , Brynhildur Guðjónsdóttir og fleiri leikkonur Borgarleikhússins eiga sviðið í Jóladagatalinu í dag.
Jóhanna Vigdís Arnardóttir , Brynhildur Guðjónsdóttir og fleiri leikkonur Borgarleikhússins eiga sviðið í Jóladagatalinu í dag.

Borgarleikhúsið býður landsmönnum öllum upp á veglega jóladagskrá í formi jóladagatals í ár. Á hverjum degi frá 1. til 24. desember verður opnaður gluggi og listamenn leikhússins gleðja með fjölbreyttum atriðum.

ABBA léttir lund

Gluggi dagsins hefst á því að Brynhildur Borgarleikhússtjóri situr buguð yfir enn einum upplýsingafundi Almannavarna þar sem vonarglætu er erfitt að sjá. Til bjargar koma þá leikkonur Borgarleikhússins með skothelt ráð til að létta lundina, klassískt lag úr Mamma Mia! söngleiknum.

Klippa: Jóla­daga­tal Borgar­leik­hússins - 23. desember

Von er á sögum, söng og tónlist, fróðleik, gríni og gleði á hverjum degi fram að jólum frá Borgarleikhúsinu. Gluggar í Jóladagatali leikhússins eru birtir daglega hér á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×