Litir ársins 2021 eru Ultimate Grey, sem líkt og nafnið gefur til kynna er grár, og guli liturinn Illuminating. Litavalið hefur lagst misjafnlega í fólk og lýsti Vogue valinu sem „mjög furðulegu“, sem væri í takt við allt annað í heiminum um þessar mundir. Þá hafa netverjar grínast með að samsetningin minni helst á vegavinnu.
PANTONE® color of the year 2021 aesthetics pic.twitter.com/SQPTOllRPg
— básico de rosto (@caiofall) December 9, 2020
Pantone segir litina tákna „skilaboð hamingju og þolgæðis“ sem ætti að vera lýsandi fyrir annars vegar það tímabil sem vonandi líður senn undir lok með tilkomu bóluefnis, og hins vegar þá björtu tíma sem gætu verið handan við hornið.
Gulur var síðast litur ársins 2009, en hann bar heitið Mimosa og var ögn hlýrri en sá sem varð fyrir valinu að þessu sinni. Þá var litnum lýst sem „björtum og hamingjuríkum“ en hann var tilkynntur í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008.
Svo virðist sem Pantone líti á gulan sem nokkurs konar táknmynd bjartari framtíðar í kjölfar erfiðleika.
Introducing the Pantone Color of the Year 2021...
— PANTONE (@pantone) December 9, 2020
Produced by @artechouse #Pantone #pantone2021 pic.twitter.com/nU8cky9OhI