Þinn eigin rjúpusnafs Karl Lúðvíksson skrifar 2. desember 2020 08:21 Rjúpusnafs er að verða vinsæl hefð Nú eru þeir sem náðu jólarjúpunum farnir að hugsa sér til hreyfings með að hengja rjúpurnar út til að þær fái gott bragð í bringurnar.
Nú eru þeir sem náðu jólarjúpunum farnir að hugsa sér til hreyfings með að hengja rjúpurnar út til að þær fái gott bragð í bringurnar. Bragðið kemur úr fóarninu sem er oftar en ekki fullt af jurtum og berjum sem rjúpan er að gæða sér á. Þetta bragð er einmitt það sem getur breytt smá vodka í ljúffengan jólasnafs. Það sem þarf að gera er mjög einfalt. Þú tekur innan úr fóarninu og þeim mun ferskara sem innihaldið er því betra. Leggðu það á eldhúspappír í tómri Macintoshdós (loksins koma þær að gagni) og á ofn til að þurrka innihaldið aðeins. Þú þarft svo um það bil einn desilítra af þessari jurtablöndu út í 750 ml flösku af vodka en það sem þú mátt ekki gleyma er að taka af einn desilítra af vodka úr flöskunni áður en þú setur jurtingar út í. Það er líka mælt með að nota hlutlausan vodka og þarna getur nefnilega verið mikill munur á bragðinu á snafsinum. Betri vodki gefur betra bragð. Þú setur jurtablönduna út í og geymir svo flöskuna fram á næstu jólahátið. Sumir hafa líka geymt þær skemur og það þykir ekkert síðra. Það sem gerist við lengri geymslutíma er auðvitað meira bragð en líka fær snafsinn á sig meiri lit. Það er hægt að skilja jurtirnar eftir í flöskunni eða umhella og sigta hratið frá ef þér finnst rétt bragð vera komið.
Skotveiði Uppskriftir Jóladrykkir Mest lesið Fluga dagsins: Skæð laxafluga Veiði 30 laxa opnun Þverár og Kjarrár í gær Veiði Rjúpnahelgi framundan Veiði Nóg af laxi en aðstæður krefjandi Veiði Er sumarflugan 2014 fundin? Veiði 48 laxa holl í Kjarrá Veiði Upptaka af erindi um lax og virkjanir Veiði Nokkrir risar úr Affallinu Veiði Lygilegur veiðidagur feðga í Hofsá Veiði Ekki fyrir viðkvæma: Kind skelfilega illa leikin eftir dýrbít í Lundarreykjadal Veiði