Giroud tryggði Chelsea dramatískan sigur á Rennes Ísak Hallmundarson skrifar 24. nóvember 2020 20:00 Chelsea fagna sigri og sæti í 16-liða úrslitum. getty/Darren Walsh Chelsea er komið áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 2-1 sigur á Rennes í Frakklandi. Callum Hudson-Odoi kom Chelsea yfir á 22. mínútu leiksins og var staðan 1-0 í hálfleik. Allt stefndi í 1-0 sigur Chelsea en á 85. mínútu jafnaði Sehrou Guirassy fyrir Rennes. Það var þó skamvinn gleði fyrir franska liðið því í uppbótartíma skoraði varamaðurinn Oliver Giroud fyrir Chelsea og tryggði þeim sigurinn og farseðil í 16-liða úrslitin. Rennes er hinsvegar í neðsta sæti riðilsins og á ekki lengur möguleika á sæti í 16-liða úrslitum. Á sama tíma vann Sevilla 2-1 útisigur á Krasnodar í Rússlandi og tryggði sér sömuleiðis sæti í 16-liða úrslitum. Ivan Rakitic kom Sevilla yfir á 4. mínútu en Wanderson jafnaði metin á 56. mínútu fyrir Krasnodar. Allt virtist stefna í jafntefli en á fimmtu mínútu uppbótartíma innsiglaði Munir El Haddadi sigur Sevilla og er spænska liðið komið í 16-liða úrslit líkt og Chelsea, einungis spurning hvort liðið endar í toppsæti riðilsins. Meistaradeild Evrópu
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti