Vill að Jón Daði byrji í kvöld Sindri Sverrisson skrifar 12. nóvember 2020 13:31 Hæfileikar Jóns Daða Böðvarssonar í loftinu gætu nýst Íslandi í kvöld að mati Hjörvars. Jón Daði kom ekkert við sögu gegn Rúmeníu í undanúrslitum umspilsins í síðasta mánuði en lék gegn Danmörku og Belgíu í ÞJóðadeildinni. Vísir/Vilhelm
Nánast allt byrjunarliðið sem mætti Króatíu í úrslitaleik ytra um sæti á HM fyrir sjö árum er til taks í Búdapest í kvöld í úrslitaleik Íslands við Ungverjaland um sæti á EM. Guðmundur Benediktsson velti vöngum yfir mögulegu byrjunarliði Íslands í kvöld með sérfræðingum sínum, Sigurvini Ólafssyni og Hjörvari Hafliðasyni, í Sportinu í kvöld í gærkvöld. Gummi benti á að ef Erik Hamrén kysi svo gæti hann stillt upp sama byrjunarliði og mætti Króatíu í Zagreb 2013, fyrir utan að Eiður Smári Guðjohnsen hefði lagt skóna á hilluna. Liðið sem mætti Króatíu má sjá hér að neðan. Svona var byrjunarliðið í seinni umspilsleiknum við Króatíu fyrir HM sem fram fór í Brasilíu 2014. Aðeins Eiður Smári Guðjohnsen er ekki með núna. Sérfræðingarnir telja þó líklegast að byrjunarliðið verði nánast það sama og í undanúrslitaleiknum við Rúmeníu í síðasta mánuði. Eina breytingu verður þó að gera því að Arnór Ingvi Traustason fékk ekki að koma til Ungverjalands eftir að liðsfélagi hans hjá Malmö greindist með kórónuveiruna. Líklegast er talið að Skagfirðingurinn Rúnar Már Sigurjónsson, leikmaður Astana í Kasakstan, komi inn í hans stað. Rúnar Már Sigurjónsson er í líklegasta byrjunarliðinu að mati sérfræðinganna. Hjörvar kvaðst reyndar sjálfur vilja setja Jón Daða Böðvarsson á vinstri kantinn. „Af hverju? Því hann er góður í loftinu. Það er þá hægt að spyrna upp á hann og hann getur farið í þetta. Svo er hann ágætur í föstum leikatriðum, bæði í sókn og vörn. Hann er bara með þrjú landsliðsmörk en þau hafa komið í alvöru leikjum. Hann hefur reynsluna og þekkinguna og er búinn að spila mikið með gamla bandinu,“ sagði Hjörvar. Önnur leið væri að gefa Birki Má Sævarssyni sæti í byrjunarliðinu á nýjan leik. Birkir datt út úr byrjunarliðinu í fyrra og missti um tíma sæti sitt í landsliðshópnum en var valinn á ný í síðasta verkefni og bæði skoraði og lék afar vel gegn Belgíu í síðasta landsleik. Komi Birkir Már inn í liðið telja sérfræðingarnir að Guðlaugur Victor færist inn á miðjuna og Birkir Bjarnason á kunnuglegar slóðir á vinstri kantinum. Birkir Már Sævarsson gæti verið í byrjunarliði Íslands og það litið svona út. Loks veltu Gummi og félagar því fyrir sér hvernig það kæmi út að spila með 3-5-2 leikkerfi, líkt og Ísland hefur prófað gegn Belgíu og Frakklandi á síðustu árum. „Ég veit að þeir eru ekki að fara að gera það. Það væri alveg úr karakter. En væri einhver spurning um að koma aðeins á óvart? Hvernig myndu Ungverjar bregðast við?“ spurði Gummi. „Við höfum aldrei gefið þessu leikskipulagi tækifæri nema í „ómögulegum“ leikjum,“ benti Hjörvar á. „Ég hef aldrei séð þetta virka eins vel og á móti Belgum síðast,“ sagði Sigurvin og bætti við: „Yfirleitt hefur mér þótt þetta algjörlega mistakast, en mér fannst ganga mjög vel síðast. Það væri fróðlegt, ef við teljum okkur vera betri en Ungverja, að prófa að „matcha“ þá með 3-5-2 gegn 3-5-2.“ Svona gæti byrjunarlið Ungverja litð út í kvöld. Klippa: Sportið í kvöld - Byrjunarlið Íslands
EM 2020 í fótbolta Tengdar fréttir Segir að áhorfendaleysið hjálpi Íslendingum Hjörvar Hafliðason telur að það hjálpi Íslendingum að leikurinn gegn Ungverjum fari fram fyrir luktum dyrum. 12. nóvember 2020 11:01 Svona getur þú horft á úrslitaleikinn við Ungverja Úrslitaleikur Ungverjalands og Íslands um sæti á EM verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í kvöld. 12. nóvember 2020 10:39 Sjáðu upphitunarþátt Gumma Ben um úrslitaleikinn við Ungverja Guðmundur Benediktsson rýndi í úrslitaleik Ungverjalands og Íslands ásamt sérfræðingum sínum í sérstökum upphitunarþætti í gærkvöld. Þáttinn í heild má nú sjá á Vísi. 12. nóvember 2020 07:29 „Getur verið gamall og hungraður“ Erik Hamrén segir að hvatinn hjá leikmönnum íslenska karlalandsliðsins í fótbolta til að ná árangri sé enn mikil. 11. nóvember 2020 16:44 Aron Einar: Ekki „síðasti dansinn“ hjá íslenska landsliðinu Erik Hamrén og Aron Einar voru spurðir út í það hvort þetta sé mögulegur svanasöngur íslensku gullkynslóðarinnar. 11. nóvember 2020 16:21 Hamrén finnur til með ungverska þjálfaranum Erik Hamrén, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, var spurður út í fjarveru ungverska landsliðsþjálfarans á blaðamannafundi í dag. 11. nóvember 2020 16:03 Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Enski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Enski boltinn Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Körfubolti Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar „Markmiðinu er náð“ Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Aron Einar heim í Þorpið? Náðu miðum á HM án þess að borga fyrir þá Sjá meira
Segir að áhorfendaleysið hjálpi Íslendingum Hjörvar Hafliðason telur að það hjálpi Íslendingum að leikurinn gegn Ungverjum fari fram fyrir luktum dyrum. 12. nóvember 2020 11:01
Svona getur þú horft á úrslitaleikinn við Ungverja Úrslitaleikur Ungverjalands og Íslands um sæti á EM verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í kvöld. 12. nóvember 2020 10:39
Sjáðu upphitunarþátt Gumma Ben um úrslitaleikinn við Ungverja Guðmundur Benediktsson rýndi í úrslitaleik Ungverjalands og Íslands ásamt sérfræðingum sínum í sérstökum upphitunarþætti í gærkvöld. Þáttinn í heild má nú sjá á Vísi. 12. nóvember 2020 07:29
„Getur verið gamall og hungraður“ Erik Hamrén segir að hvatinn hjá leikmönnum íslenska karlalandsliðsins í fótbolta til að ná árangri sé enn mikil. 11. nóvember 2020 16:44
Aron Einar: Ekki „síðasti dansinn“ hjá íslenska landsliðinu Erik Hamrén og Aron Einar voru spurðir út í það hvort þetta sé mögulegur svanasöngur íslensku gullkynslóðarinnar. 11. nóvember 2020 16:21
Hamrén finnur til með ungverska þjálfaranum Erik Hamrén, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, var spurður út í fjarveru ungverska landsliðsþjálfarans á blaðamannafundi í dag. 11. nóvember 2020 16:03