Lífið

Fréttakviss vikunnar #5: Léttar spurningar eftir þunga fréttaviku

Tinni Sveinsson skrifar
Fréttakviss
Fréttakviss Vísir/Hjalti

Hversu vel fylgist þú með fréttum og líðandi stund? Vísir kynnir til leiks fimmtu útgáfu af Fréttakvissi vikunnar, sem verður í boði á laugardögum í allan vetur.

Fréttavikan hefur verið nokkuð þung og hafa kosningarnar í Bandaríkjunum og flækjurnar í kringum þær dregið vagninn. Spurningarnar í fréttakvissinu eru aftur á móti í léttari kantinum og fjalla meðal annars um jólaplötu íslenskrar söngkonu, einn flottasta Bond-leikarann og rúllutertuhús sem var nýlega auglýst til sölu.

Í fréttakvissinu eru tíu laufléttar spurningar. Spreyttu þig hér fyrir neðan og ef vel gengur hlýtur þú montrétt að launum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.