Gríðarlega óvænt tap hjá Spánarmeisturunum 17. október 2020 18:45 Leikmenn Real Madrid voru eðlilega svekktir eftir óvænt tap í kvöld. getty/Gonzalo Arroyo Moreno Spánarmeistarar Real Madrid töpuðu ansi óvænt fyrir nýliðum Cádiz á heimavelli í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Fyrir leik höfðu Madrídingar unnið þrjá leiki í röð og virtust vera á miklu flugi. Nýliðar Cádiz hafa hinvegar komið á óvart og voru með sjö stig úr fimm leikjum fyrir leikinn í dag. Anthony Lozano skoraði eina mark leiksins á 16. mínútu. Real var mun meira með boltann eða 75% í leiknum en lið Cádiz beitti hættulegum skyndisóknum og skapaði sér fleiri marktækifæri. Eftir leikinn er Real Madrid þó enn á toppnum með tíu stig, en gæti misst toppsætið í hendur erkifjandanna í Barcelona í kvöld. Cádiz er þá í öðru sæti með tíu stig en hefur spilað einum leik fleiri en Real, virkilega óvænt byrjun hjá nýliðunum. Grannar Real í Madrídarborg, Atlético Madrid, unnu sannfærandi sigur á Celta Vigo fyrr í dag. Luis Suarez og Yannick Carrasco sáu um mörkin í 2-0 sigri. Atlético er nú í 5. sæti með átta stig en liðið hefur aðeins spilað fjóra leiki í deildinni. Spænski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti