Útlit fyrir að fimmtánhundruð manns mæti á landsleikina Sindri Sverrisson skrifar 2. október 2020 13:18 Stuðningsmenn Íslands geta mætt á komandi landsleiki, en aðeins 1.500 á hvern leik. vísir/vilhelm
Áætlanir KSÍ gera ráð fyrir því að verði sóttvarnareglum á Íslandi ekki breytt á næstu dögum muni um 1.500 manns fá að sitja í stúkunum á Laugardalsvelli í komandi landsleikjum. Þetta sagði Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, við Vísi í dag. UEFA gaf í gær grænt ljós á það að áhorfendur yrðu á landsleikjum á vegum sambandsins, eftir að hafa bannað það vegna kórónuveirufaraldursins. UEFA leyfir að 30% sætafjölda sé nýttur fyrir áhorfendur á leikjum, sem í tilviki Laugardalsvallar þýðir að 2.940 mættu mæta. Hins vegar gilda sóttvarnareglur í hverju landi fram yfir reglur UEFA, að sjálfsögðu. Gæta þarf að eins metra reglu á Íslandi og að ekki séu fleiri en 200 manns í hverju hólfi. Hugsanlegt er að þessar reglur verði hertar á næstu dögum. Þess vegna er ekki gert ráð fyrir að fleiri en 1.500 manns komist á landsleikina. Íslenska karlalandsliðið mætir Rúmeníu á fimmtudaginn eftir viku, í undanúrslitum EM-umspilsins, og svo Danmörku og Belgíu 11. og 14. október í Þjóðadeildinni. Klara segir að miðasala hefjist eftir helgi og munu ársmiðahafar hafa forgang fram yfir aðra. Þeir eru að sögn Klöru fleiri en 1.500 talsins.
EM 2020 í fótbolta Þjóðadeild UEFA KSÍ Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið „Það hjálpar ekki neitt“ Handbolti „Haukur og Einar ekki komnir til að vera í stúkunni“ Handbolti Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Enski boltinn Segir Ísland verða að vinna Slóveníu Handbolti Rúmin á hótelinu valda bakvandamálum: „Nokkrir helvíti stífir“ Handbolti Neymar á heimleið? Fótbolti Kominn úr banni en gleðin enn týnd Körfubolti Orðinn þreyttur á lélegum liðum á HM: „Þetta er algjört bíó“ Handbolti Pavel stakk upp á áhugaverðum skiptum Körfubolti „Við erum mögulega lélegasta lið í sögu Manchester United“ Fótbolti Fleiri fréttir Fowler með sína kenningu um þá samningslausu hjá Liverpool Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Neymar á heimleið? „Við erum mögulega lélegasta lið í sögu Manchester United“ Real Madrid á toppinn eftir þægilegan sigur Bjarki Steinn í fyrsta sinn í byrjunarliði Venezia Áttundi sigur Forest í síðustu níu leikjum Yfirlýsing frá City með stórsigri Onana með skelfileg mistök þegar United tapaði enn og aftur fyrir Brighton Cecilía hélt enn einu sinni hreinu og Inter vann Draumaendurkoma hjá Moyes á Goodison Park Misstu niður forystu þrátt fyrir að vera manni fleiri Fyrrverandi landsliðsmaður Englands mætir KSI í boxbardaga Segir Liverpool besta lið heims Antony á leið til Betis Fjármagnaði leikmannakaup Wimbledon með tölvuleikjaspilun Brynjólfur Willumsson á skotskónum í tapleik Groningegn Sex í röð hjá Napólí Juventus lagði AC Milan Ollie Watkins gerði Arsenal skráveifu Sjöunda tap Leicester í röð Núnez með tvö mörk í uppbótartíma Jónatan Ingi tryggði Val sigur á Fram Kluivert með þrennu í fyrsta leik dagsins Elísabet sögð vera að taka við belgíska landsliðinu FIFA setur forsetann í bann fyrir að kalla konu feita Haaland sagður fá yfir tólf milljónir í laun á dag næsta áratuginn Hákon skoraði í endurkomusigri Lille Samingur Haaland slæmar fréttir fyrir Alan Shearer Endrick tileinkaði Rüdiger mörkin sin: Hann hrósar mér aldrei Sjá meira