Tónlist

Föstudagsplaylisti Kinnat Sóleyjar

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Kinnat þykir enginn barningur að hanna tónlistarvarning.
Kinnat þykir enginn barningur að hanna tónlistarvarning.

Kinnat er grafískur hönnuður sem vinnur undir nafninu Merch Babe og er ásamt Sólveigu Matthildi heilinn á bak við tímaritið og útgáfufyrirtækið Myrkfælni.

Hún hefur verið búsett í Leipzig í Þýskalandi síðustu fjögur ár og rekur þar vinnustofu ásamt öðru listafólki. Hún hefur einnig unnið mikið að myndbandagerð fyrir íslenskt tónlistarfólk ásamt kærasta sínum, Dean Kemball.

Tímaritið Myrkfælni fjallar um íslenska grasrótarmenningu og kom fjórða tölublað þess út fyrir viku síðan. Með blaðinu fylgir safnkassetta með tólf lögum eftir íslenskt jaðartónlistarfólk.

Í sumar tilkynntu þær Kinnat og Sólveig að þær hygðust hefja útgáfu tónlistar gegnum Myrkfælni og hafa þær þegar tilkynnt að von sé á plötum með Holdgervlum, Rex Pistols og MSEA í haust.

Eins og við er að búast einkennir íslensk grasrótartónlist lagalista Kinnat, og er tónlist eftir konur í miklum meirihluta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.