Tiger Woods verður ekki meðal keppenda á Players mótinu sem hefst næstkomandi fimmtudag.
Bandaríski kylfingurinn hefur lengi átt í vandræðum með bakið á sér og það er vegna bakmeiðsla sem hann spilar ekki á mótinu. „Bakið er bara ekki tilbúið. Þetta er ekki áhyggjumál til lengri tíma, það er bara ekki tilbúið núna,“ sagði Mark Steinberg, umboðsmaður Woods, við ESPN.
Woods hefur ekki spilað á móti síðan á Genesis Invitational um miðjan febrúar þar sem hann endaði á meðal neðstu manna af þeim sem komust í gegnum niðurskurð. Þá kvartaði hann undan stífleika í baki. Hann hefur síðan sleppt þátttöku á Mexíkó meistaramótinu, Honda Classic og Arnold Palmer boðsmótinu sem stendur yfir.
The Players, sem stundum er kallað „fimmta risamótið“ og er flaggskip PGA-mótaraðarinnar, fer fram dagana 12.-15. mars á TPC Sawgrass. Woods hefur tvisvar unnið mótið. Hann endaði í 30. sæti á mótinu fyrir ári síðan en vann svo sinn 15. risamótstitil fjórum vikum síðar á Masters.
Bakslag hjá Tiger sem missir af Players

Tengdar fréttir

Tiger Woods endaði í síðasta sæti á Genesis Invitational en Adam Scott vann
Ástralinn Adam Scott lék best allra á Genesis Invitational golfmótinu í Bandaríkjunum sem lauk í gær en þetta var fyrsti sigur hans á PGA-mótaröðinni í næstum því fjögur ár.

Tiger ekki með á Arnold Palmer-mótinu í næstu viku
Þetta er annað árið í röð þar sem Tiger Woods þarf að draga sig úr mótinu vegna meiðsla.

Tiger leiddi Bandaríkin til sigurs í Forsetabikarnum
Þrátt fyrir að vera tveimur vinningum undir fyrir lokadaginn unnu Bandaríkin Forsetabikarinn í ellefta sinn.