Fyrsta vetrarfríið búið snemma? Sindri Sverrisson skrifar 10. febrúar 2020 23:00 Pep Guardiola og hans menn hafa nóg að gera þegar vetrarfríinu lýkur. vísir/epa
Lið Manchester City og West Ham gætu neyðst til þess að ljúka sínu fyrsta vetrarfríi snemma. Erfitt virðist að finna hentugan dag fyrir liðin til að mætast eftir að leik þeirra var frestað vegna veðurs á sunnudag. Enska úrvalsdeildin lét undan þrýstingi fyrir þessa leiktíð um að leikmenn fengju að fara í vetrarfrí á miðri leiktíð, líkt og tíðkast í öðrum bestu deildum Evrópu. Leikmenn City og West Ham eru því komnir í frí og ekki stóð til að þeir þyrftu að spila aftur leik fyrr en eftir tvær vikur. Úrvalsdeildin vill reyna eins og hægt er að koma í veg fyrir að frí leikmanna verði stytt en samkvæmt Daily Mirror er líklegast að sú verði raunin, og að leikurinn fari fram miðvikudagskvöldið 19. febrúar. Manchester City á afar stífa leikjadagskrá fyrir höndum en Englandsmeistararnir eru einnig að spila í enska bikarnum, deildabikarnum og Meistaradeild Evrópu. Áður hefur leikur þeirra við Arsenal sem fram átti að fara 29. febrúar verið færður vegna úrslitaleiks deildabikarsins sömu helgi. Þess vegna virðist næsta vika eini möguleikinn sem í boði er. Félögin vilja hins vegar ekki kalla leikmenn sína of snemma úr fríi og samkvæmt Mirror er enn verið að velta upp fleiri möguleikum, þó að 19. febrúar sé líklegasta niðurstaðan.
Enski boltinn Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Fleiri fréttir „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Sjá meira