Hólmar Örn í ensku úrvalsdeildina? Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 26. janúar 2020 22:30 Er Hólmar Örn á leiðinni í ensku úrvalsdeildina? Vísir/Getty
Hólmar Örn Eyjólfsson, miðvörður Levski Sofia og íslenska landsliðsins, er mögulega á leiðinni í ensku úrvalsdeildina áður en félagaskiptaglugginn þar í landi lokar þann 1. febrúar. Samkvæmt vefmiðlinum 90min er Hólmar Örn undir smásjánni hjá AFC Bournemouth en félagið er í harðri fallbaráttu sem stendur. Hólmar Örn hefur staðið sig einkar vel með Levski Sofia í búlgörsku úrvalsdeildinni það sem af er leiktíð. Alls hefur hann leikið 15 leiki og skorað þrjú mörk. Þá var á sínum tíma á mála hjá West Ham United frá árunum 2008-2011, sem einnig leikur í ensku úrvalsdeildinni, án þess þó að leika fyrir félagið. Á þeim tíma fór Hólmar meðal annars á lán til Cheltenham Town í ensku D-deildinni sem og Roeselare í Belgíu. Þaðan lá leið hans til VfL Bochum í Þýskalandi, Rosenborg í Noregi, Maccabi Haifa í Ísrael og loks Levski Sofia í Búlgaríu. Varnarlína Bournemouth er þunnskipuð þessa dagana og er Eddie Howe, þjálfari liðsins, í leit að nýjum miðverði. Hvort Hólmar Örn verði fyrir valinu verður að koma í ljós en hann yrði þá þriðji Íslendingurinn í úrvalsdeildinni. Fyrir eru þeir Gylfi Þór Sigurðsson hjá Everton og Jóhann Berg Guðmundsson hjá Burnley. Bournemouth er sem stendur í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Enski boltinn Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Handbolti Fleiri fréttir „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Sjá meira