Ótrúleg sigurganga Liverpool heldur áfram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en liðið er með sextán stiga forystu á toppi deildarinnar eftir 1-0 sigur á Tottenham í dag.
Liverpool's last #PL matches...
— Premier League (@premierleague) January 11, 2020
WWWWWWWWWWWWDWWWWWWWWWWWWWWWWWDWDWDDWW pic.twitter.com/Zw9TvTf5kQ
Christian Eriksen var í byrjunarliði Tottenham þrátt fyrir að virðast vera á leið til Inter Milan og Harry Kane er á meiðslalistanum.
Liverpool hefur ekki tapað síðustu 38 leikjum sínum en fyrsta og eina mark leiksins kom á 37. mínútu.
Mo Salah kom þá boltanum á Roberto Firmino sem tók boltann skemmtilega með sér inn í vítateig Tottenham og kom boltanum framhjá Paulo Gazzaniga.
Fleiri urðu mörkin ekki og 1-0 sigur Liverpool sem færist nær og nær því að verða enskur meistari í fyrsta sinn í háa herrans tíð.
FT
— BBC Sport (@BBCSport) January 11, 2020
Liverpool go SIXTEEN points clear at the top of the #PL
Tottenham 0-1 Liverpool#TOTLIV reaction: https://t.co/kzV67C3IhApic.twitter.com/wJGy3RrHwV
Liverpool er með 61 stig á toppi deildarinnar, Leicester er í öðru með 45 stig og Man. City í þriðja sætinu með 44 stig. Leicester hefur leik einum leik fleiri en City og Liverpool.
Tottenham er í 8. sæti deildarinnar með 28 stig.