Eitt af þremur mun bjarga lífi sínu Sindri Sverrisson skrifar 26. júlí 2020 11:30 Trezeguet kyssir jörðina eftir afar dýrmætt mark gegn Arsenal. Þökk sé honum getur Aston Villa mögulega haldið sæti sínu í úrvalsdeildinni. VÍSIR/GETTY
Það er útlit fyrir hádramatíska fallbaráttu í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag en ljóst er að aðeins eitt eftirtalinn liða mun halda sæti sínu í deildinni; Aston Villa, Watford eða Bournemouth. Villa er fyrir ofan fallstrikið þar sem liðið er með einu marki betri markatölu en Watford. Bournemouth er svo þremur stigum á eftir, í 19. sæti, en dugar sigur á Everton í dag ef hin tvö liðin tapa. Villa sækir West Ham heim í dag en Watford mætir Arsenal á útivelli. Segja má að Villa hafi tveggja marka forskot á Watford, þar sem að Villa-menn hafa skorað fleiri mörk á leiktíðinni. Villa virtist á leið niður í 1. deild en hefur náð í sjö stig úr síðustu þremur leikjum, þar sem Egyptinn Trézéguet hefur séð um að skora mörkin í sigurleikjum gegn Arsenal og Crystal Palace. Lið Norwich er löngu fallið en það er með 19 stig á botni deildarinnar. Umspilið í B-deildinni hefst Leeds United og West Bromwich Albion náðu tveimur efstu sætunum í ensku B-deildinni og leika því í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Umspilið um þriðja sætið í deildinni hefst í dag þegar Swansea tekur á móti Brentford, en Swansea náði með ævintýralegum hætti að koma sér í umspilið á kostnað Nottingham Forest á meðan að Brentford missti 2. sæti í hendur West Brom með tapi í lokaumferðinni. Seinni leikur Brentford og Swansea verður svo á miðvikudag. Í hinu umspilseinvíginu mætast Cardiff og Fulham, á morgun og á fimmtudag. Umspilið er sýnt á Stöð 2 Sport 2.
Enski boltinn Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Skoraði á HM en nær ekki að spila í Fossvogi Fótbolti Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Fleiri fréttir Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Sjá meira