Veðurviðvörun fyrir Vestfirði orðin appelsínugul Kjartan Kjartansson skrifar 16. júlí 2020 16:57 Veðurstofan hefur hækkað viðvörun á Vestfjörðum í appelsínugula. Veðurstofan
Varað er við mikilli rigningu og hættu á skriðuföllum í appelsínugulri viðvörun sem Veðurstofan hefur gefið út fyrir Vestfirði og gildir langt fram á annað kvöld. Gul veðurviðvörun hefur verið gefin út vegna hvassviðris og úrkomu fyrir landið vestan- og norðanvert. Gert var ráð fyrir versta veðrinu á Vestfjörðum í allhvassri norðaustanátt í dag og á morgun. Nú síðdegis uppfærði Veðurstofan gula viðvörun í appelsínugula fyrir Vestfirði. Hún gildir frá klukkan 16:30 í dag til miðnættis annað kvöld. Búist er við auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum og að vöð getið orðið varhugarverð og jafnvel ófær. Þá er varað við hættu á skriðum og grjóthruni. Rigning er einnig talin munu auka álag á fráveitukerfi og fólk er hvatt til að huga að niðurföllum til að forðast vatnstjón. Einnig er varað við vatnavöxtum og skriðuföllum í veðrinu á Ströndum, Skaga og Tröllaskaga. Spáð er mikilli úrkomu og leysingum við Mýrdalsjökul og sunnanverðan Vatnajökul, með hækkandi vatnshæð og miklu rennsli í lækjum og ám. Vöð geta orðið varasöm og ferðafólk hvatt til þess að sýna aðgát við óbrúaðar ár. Gular viðvaranir vegna veðurs nú síðdegis og í kvöld eru í gildi fyrir Vestfirði, Breiðafjörð, Strandir, Norðurland vestra og eystra og ná þær fram á laugardag.
Veður Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira