Lífið

Verðlaunasýningar á Hafnartorgi vöktu athygli

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Frá sýningunni Tolerance á Hafnartorgi í gær.
Frá sýningunni Tolerance á Hafnartorgi í gær. FÍT/Haraldur Jónasson

Félag íslenskra teiknara opnaði tvær alþjóðlegar verðlaunasýningar á Hafnartorgi í tilefni af HönnunarMars 2020. Um er að ræða farandsýningu Art Directors Club of Europe þar sem verðlaunuð verk víðsvegar að úr Evrópu verða til sýnis og Tolerance Project listamannsins Mirko Ilic. Listrænn stjórnandi sýninganna er Becky Forsythe.

Kristín Eva Ólafsdóttir formaður FÍT og Becky Forsythe sýningarstjóri við opnun sýningarinnar á Hafnartorgi.FÍT/Haraldur Jónasson

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá opnunarviðburðinum á Hafnartorgi á opnun sýninganna. Myndirnar tók Haraldur Jónasson fyrir FÍT.

Tolerance sýningin fagnar og heiðrar upphafið að allri merkri orðræðu: umburðarlyndi en Mirko Ilić hefur fengið yfir 140 hönnuði til að túlka viðfangsefnið, hver á sinn hátt og fer verkefnið sífellt stækkandi. Meðal hönnuða sem taka þátt eru Milton Glaser, KarlssonWilker, Ed Fella, Jessica Hische, Max Kisman og Sigurður Oddsson. Sýningin hefur verið sett upp í yfir 67 skipti í 27 löndum.

Ferðasýning Art Directors Club of Europe (ADC*E) sýnir verðlaunuð verk úr Evrópukeppni hönnuða en þátttökurétt í keppninni öðlast öll verðlaunuð verk frá hverju landi fyrir sig en Félag íslenskra teiknara (FÍT) er aðili að ADC*E og heldur utan um þátttöku Íslands í keppninni.

32 verkefni verða til sýnis en eitt af verðlaunuðum verkum er verkefnið Útmeða eftir Viktor Weisshappel sem var unnið með Tjarnargötunni fyrir Rauða kross Íslands og Geðhjálp. Sýningarnar eru opnar frá 11-19 á meðan HönnunarMars stendur, en hátíðinni lýkur á sunnudag.

HönnunarMars 2020 átti að fara fram í lok marsmánaðar eins og undanfarin ellefu ár, en vegna Covid-19 faraldursins var hátíðinni frestað til 24.-28. júní. Á hátíðinni leiðir framsækin hönnun og nýjungar saman sýnendur og gesti.

HönnunarMars fer fram með breyttu sniði í ár en tugir hönnuða taka þátt og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Nánar verður fjallað um hátíðina hér á Vísi næstu daga. Einhverjir viðburðir eru opnir lengur en þessa fimm daga og nánar má lesa um dagskránna á vef HönnunarMars.


Tengdar fréttir

Studio 2020 á HönnunarMars: Hönnunarspjall eitt

Í hönnunarspjallþættinum verður farið yfir sýningar og viðburði HönnunarMars hátíðarinnar með vel völdum einstaklingum á meðan hátíðin stendur yfir sem og samtal um hönnun í ljósi hamfarahlýnunar, hraðra tækniframfara, samfélagsbreytinga og nú síðast covid 19.

Dagskrá HönnunarMars: Dagur tvö

HönnunarMars fer fram um helgina, dagana 24. til 28. júní. Alla dagskránna er hægt að nálgast á heimasíðu HönnunarMars og sömuleiðis er þar að finna gagnvirkt kort sem hægt er að nýta sér til að skipuleggja sýningarflakk hátíðarinnar.

Heimsþekktir hönnuðir á verðlaunasýningu á HönnunarMars

Félag íslenskra teiknara verður með tvær alþjóðlegar verðlaunasýningar á Hafnartorgi í tilefni af HönnunarMars 2020, sem fer fram dagana 24. til 28. júní. Um er að ræða farandsýningu Art Directors Club of Europe þar sem verðlaunuð verk víðsvegar að úr Evrópu verða til sýnis og Tolerance Project listamannsins Mirko Ilic.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.