Madríd býðst til að halda úrslitaleik Meistaradeildarinnar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. júní 2020 16:30 Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu fór fram á Wanda Metropolatino, heimavelli Atlético Madrid, í fyrra. getty/Oscar J. Barroso
Madríd hefur boðist til að halda úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í fótbolta ef hann verður færður frá Istanbúl. Úrslitaleikurinn átti að fara fram á Atatürk vellinum í Istanbúl 30. maí. Keppni í Meistaradeildinni var hins vegar hætt í mars vegna kórónuveirufaraldursins og óvíst er hvenær hún verður kláruð. Í síðasta mánuði greindi New York Times frá því að úrslitaleikur Meistaradeildarinnar yrði ekki í Istanbúl og UEFA, Knattspyrnusamband Evrópu, væri að skoða aðra kosti í stöðunni. Borgarstjórinn í Madríd, José Luis Martínez-Almeida, segir að borgin sé tilbúin að halda úrslitaleikinn sem fer væntanlega fram fyrir luktum dyrum. Í fyrra fór úrslitaleikur Meistaradeildarinnar fram á Wanda Metropolitano, heimavelli Atlético Madrid. Liverpool bar þá sigurorð af Tottenham, 2-0. Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar hefur einnig fjórum sinnum farið fram á Santiago Bernabéu, heimavelli Real Madrid, síðast 2010. Þá vann Inter Bayern München með tveimur mörkum gegn engu. Frekari fregna af Meistaradeildinni og hvar úrslitaleikurinn verður haldinn er að vænta eftir fund framkvæmdastjórnar UEFA 17. júní.
Meistaradeild Evrópu Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira