Lífið

Bieber sér eftir að hafa ekki verið skír­lífur

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Justin Bieber og Hailey Baldwin.
Justin Bieber og Hailey Baldwin. Getty/Jean Baptiste Lacroix

Justin Bieber segist sjá eftir því að hafa ekki verið skírlífur fram að hjónabandi. „Ég veit að það hljómar fáránlega. Kynlíf getur verið mjög flókið þegar þú átt í líkamlegu sambandi við einhvern,“ sagði hann í þættinum The Biebers on Watch sem hann og Hailey Baldwin, konan hans, streyma á Facebook.

Baldwin sagðist sammála því að sambönd yrðu flóknari þegar fólk stundaði kynlíf. Hún myndi sjálf ekki breyta neinu í sambandi við það. Þáttinn má sjá í spilaranum hér að neðan en þau ræða þetta á 39. mínútu.

Bieber og Baldwin trúlofuðu sig á Bahamaeyjum í júlí 2018 og giftu sig aðeins tveimur mánuðum síðar í leyni. Í september 2019 endurnýjuðu þau heitin og héldu upp á hjónabandið með fjölskyldum og vinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.