Lífið

Litla föndurhornið: Uppskrift á bretti

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Kristín Ólafsdóttir sér um litla föndurhornið á Vísi.
Kristín Ólafsdóttir sér um litla föndurhornið á Vísi.
Kristbjörg Ólafsdóttir sér um Litla föndurhornið, vikulegan lið hér á Vísi. Í desember ætlar hún að deila einu jólaföndri á dag með lesendum Vísis alveg fram að jólum. Í dag 8. desember sýnir hún hvernig á að gera bretti með piparkökuuppskrift. Við gefum Kristbjörgu orðið.

Mynd/Vísir
Þegar þú ert föndrari þá getur innblásturinn komið hvar sem er, hvenær sem er, jafnvel í draumi og já, áður en að þú spyrð, það hefur gerst. Hugmyndin af þessu verkefni vaknaði þegar ég fann þessi sætu piparkökuhjón og viðarskurðarbretti í uppáhalds notað innbú búðinni minni. Og, já, ég veit að ég segi þetta um hér um bil öll föndurverkefnin mín en þetta er í raun og veru ótrúlega einfalt og tekur varla neinn tíma. Trúir þú mér ekki? Ó, þér trúlausu, haldið bara áfram að lesa. 

Brettið var mjög dökkt en rafmagnsviðarjuðarinn minn breytt því. Ég veit að ég hefði getað sleppt því en það hefði kostað miklu fleiri umferðir af málningu.

Ég málaði brettið jólasveinarautt og á meðan málningin var að þorna þá fór ég á netið, fann piparkökuuppskrift og prentaði hana út þannig að hún passaði á brettið. Ég þurfti að minnka letrið aðeins.

Svo bar ég þunnt lag af límlakki á brettið, lagði uppskriftina ofan á eftir að hafa klippt hana til og svo aftur límlakk yfir allt.

Svo var bara að skreyta, ég notaði piparkökuskrautið enda var þetta skraut innblásturinn. Bjöllur, gervigreinar, hvítar bjöllur og rauð gerviber. Jæja, trúið mér núna? Þetta var ótrúlega fljótlegt, ekki satt? 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.