Erum fjórum árum á undan áætlun Hjörvar Ólafsson skrifar 30. október 2019 08:00 Milos Milojevic. vísir/ernir
Mjällby sem leikur undir stjórn Milos Milojevic tryggði sér á mánudagskvöldið sæti í sænsku efstu deildinni í knattspyrnu karla. Milos var gerður að aðalþjálfara Mjällby um miðjan júnímánuð árið 2018 og stýrði liðinu upp í B-deildina í fyrstu tilraun. Liðinu var spáð fallbaráttu í B-deildinni en blés á þær spár og hefur tryggt sér sæti í efstu deild þegar ein umferð er eftir af B-deildinni. „Það er mjög ljúf tilfinning að vera búnir að tryggja okkur sætið fyrir lokaumferðina. Þegar ég kom hingað var ég einnig ráðinn sem yfirþjálfari akademíunnar og markmiðið var að búa til umhverfi þar sem að góðir yngri leikmenn af svæðinu myndu vilja koma í akademíuna. Við vildum búa til bestu akademíu á því svæði í Svíþjóð þar sem Mjällby er. Félagið skuldaði tæplega 40 milljónir íslenskra króna þannig að það var á hreinu að við yrðum að byggja upp frá grunni og við gætum ekki fjárfest í dýrum leikmönnum,“ segir Milos um upphaf veru sinnar í Mjällby. „Hvað mig sjálfan varðar þá var ég með tilboð sem voru fjárhagslega betri en mig langaði að komast út úr þægindarammanum og takast á við nýja áskorun og ég sé ekki eftir því núna. Við erum komnir með U-17, U-19 og A-liðin okkar í efstu deild og það er frábært afrek að mínu mati. Mjällby er félag sem var í efstu deild fyrir sex árum og það var á stefnuskránni hjá stjórninni að komast þangað aftur 2023 þannig að við erum fjórum árum á undan áætlun,“ segir þjálfarinn hreykinn. „Afrekið er ekki síst mikið þar sem við erum með ódýrasta lið deildarinnar hvað launakostnað varðar. Meðallaun hjá okkur eru rúmlega 200.000 íslenskar krónur fyrir skatt þannig að við erum ekki með dýrt lið. Þá erum við þar að auki með næstyngsta lið deildarinnar og það lið sem er það yngsta er í harðri fallbaráttu. Við erum með 13 leikmenn sem eru annaðhvort uppaldir hjá Mjällby eða hafa komið til okkar frá öðrum félögum í kringum okkur eins og Halmstad, Helsingborg og Malmö. Þessir leikmenn eru um tvítugt og hafa þroskast hratt og vel,“ segir hann um það hvernig liðið er upp byggt. „Félagið er komið í réttan farveg hvað fjárhagslegu hliðina varðar og nú getum við vonandi farið að fjárfesta í leikmönnum og fjölga í þjálfarateyminu. Við erum að vinna mjög faglega, sérstaklega þegar tekið er mið af því hversu þjálfarateymið er lítið. Við höfum náð að búa þannig um hnútana að við erum að mæla æfingaálagið og taka leikmenn í próf reglulega. Þannig höfum við komið í veg fyrir að leikmenn séu að detta út í meiðslum sem rekja mætti til álags, það er tognanir aftan í læri og aðrar vöðvatognanir. Það hefur krafist mikillar vinnu af mér og þeim sem eru að starfa með mér,“ segir Milos um starfsumhverfið hjá félaginu. „Eins og staðan er núna er ég með spænskan aðstoðarþjálfara, markmannsþjálfara á öllum æfingum og sjúkraþjálfara sem er í 60% starfi hjá okkur en ég hef náð að plata í að vera á öllum æfingum og leikjum. Við erum svo með tvo liðsstjóra og annar þeirra er þúsundþjalasmiður og sér meðal annars um að nudda leikmennina. Ég myndi vilja bæta við styrktarþjálfara, auka starfshlutfallið hjá sjúkraþjálfaranum og ráða inn nuddara í fullt starf fyrir næsta tímabil. Þá þurfum við að bæta minnst fjórum og helst sex gæðaleikmönnum við núverandi leikmannahóp. Það er einum leikmanni í hverja línu á vellinum, markmanni, miðverði, miðjumanni og sóknarmanni,“ segir þessi metnaðarfulli þjálfari. „Það sem ég ætla hins vegar að gera fyrst er að framlengja samninga við þá leikmenn sem eru nú þegar í leikmannhópnum og ég vil halda. Það eru fjórir leikmenn sem ég myndi vilja hafa áfram í herbúðum okkar sem eru með lausa samninga. Fyrsta mál á dagskrá eftir næstu helgi er að semja við þá leikmenn. Svo fer ég í það að kanna hvernig landið liggur og hvaða leikmenn ég get fengið af leikmannamarkaðnum. Ég er kominn með gagnagrunn yfir leikmenn sem ég þekki vel og þeir eru hér og þar um heiminn. Ég mun fyrst kanna það hvaða leikmenn eru í boði á sænska markaðnum og svo mun ég líta til Íslands og annarra staða hvað leikmenn varðar,“ segir Milojevic um framhaldið.
Birtist í Fréttablaðinu Sænski boltinn Mest lesið Knorr lofaði Alfreð: Enginn egóisti og róaði okkur Handbolti Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Aldrei hlegið jafnmikið og við að horfa á Nablann Körfubolti „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Enski boltinn „Hræddir erum við ekki“ Sport Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti EM í dag: Það eru engar afsakanir í boði Handbolti Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Íslenski boltinn Átján ára orðin næstfljótust í sögu Íslands Sport Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Fleiri fréttir Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Ísland spilar við gestgjafa HM og Haítí Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Mourinho kallar nýjustu sögusagnirnar sápuóperu Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Guardiola um Haaland: „Hann svaf ótrúlega vel“ Marokkó leitar réttar síns hjá FIFA: „Þetta sár grær ekki auðveldlega“ Hörður Björgvin tekinn af velli í hálfleik í unnum leik Yfirmaður Jóns Dags í stríði við lögreglu Guéhi genginn til liðs við City Börsungar brjálaðir út í dómara sem tók þrjú mörk af þeim „Þetta eru svakaleg kaup“ Slóst við boltastráka sem vildu stela handklæðinu Tískuspaðinn Þorleifur fer aftur út Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Rauk út eftir lætin í blaðamönnum Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Karólína skoraði í sigri á Juventus Albert kom að marki í þriðja leiknum í röð Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Genoa ekki tapað í fjórum leikjum í röð Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjá meira