Skyldusigur gegn Andorra í kvöld Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 14. október 2019 12:00 Eric Hamrén sagði í gær að ástandið á hópnum væri gott eftir mikil hlaup gegn Frökkum. Samúel Kári Friðjónsson, hér lengst til vinstri, æfði þó ekki í gær vegna veikinda. Fréttablaðið/Sigtryggur
Landsliðsþjálfarinn Eric Hamrén sagði í gær að verkefni dagsins gegn Andorra gæti vart verið ólíkara viðureigninni við Frakka. Örlítil Eurovision-hugsun er í gangi fyrir leikinn – það búast allir við sigri okkar liðs. Hamrén talaði þó varlega á blaðamannafundi í gær og minnti á að Andorramenn hefðu verið, að hans mati, góðir gegn Frökkum og Tyrkjum. „Ég hreifst af því hvernig þeir spiluðu í Tyrklandi og Frakklandi og við búumst við erfiðum leik. Þeir vinna vel sem lið og verjast vel, það er styrkleiki þeirra. Þeir eru hættulegir í skyndisóknum og í föstum leikatriðum. Þeir gera liðunum sem mæta þeim erfitt fyrir. Þetta er allt öðruvísi leikur en gegn Frökkum en risastór áskorun,“ sagði landsliðsþjálfarinn. Með honum á fundinum í gær var Alfreð Finnbogason sem er að stíga upp úr meiðslum og byrjaði á bekknum gegn Frökkum. Hann var ósáttur við að byrja ekki leikinn en virti þó ákvörðun þjálfarans. „Maður er alltaf ósáttur ef maður byrjar ekki. Það mun aldrei breytast hvort sem ég spila með landsliði eða félagsliði. Erik taldi þetta vera besta liðið fyrir þennan leik og ég virði þá ákvörðun þó að ég sé ekki sammála henni,“ sagði Alfreð. Hann bætti því við að það að missa Jóhann Berg væri ekki aðeins persónulegur missir fyrir sig því hann er núna einn í herbergi heldur sé Jóhann ákaflega mikilvægur hlekkur í liðinu. „Án þess að vanvirða aðra leikmenn þá getur hann gert hluti með boltann sem ekki margir hjá okkur geta. Hann sem persóna er líka mikilvægur fyrir liðið. Vonandi fær hann tíma til að koma sér almennilega í gang. Hann er eflaust ekki ánægður. Hann hefur verið mikið meiddur síðustu ár og oft í kringum landsleiki. Þetta er mikill missir fyrir okkur.“Liðin hafa mæst sex sinnum og alltaf hefur Ísland unnið. Markatalan er 16-0. Þessi mynd er frá árinu 2010 þegar Ísland vann 4-0. Fréttablaðið/PjeturAlfreð talaði einnig um muninn á leikjunum tveimur og sagði að gegn Frökkum hefði Ísland verið lítið með boltann en nú myndi dæmið snúast við. „Andorra hefur að meðaltali verið 25 prósent með boltann svo við gerum ráð fyrir því að við verðum 70-80 prósent með boltann. Þá reynir á aðra eiginleka í okkar leik. Að það sé tempó í sendingum og að við stjórnum tempóinu í leiknum.“ Hann bætti við að íslenska liðið mætti ekki láta Andorramenn taka sig á taugum. Moldóvar hafi misst sig gegn þeim og fengið rautt spjald. „Andorramenn eru sérfræðingar í að pirra andstæðinginn eins og sást í útileiknum. Við sáum á klippum í gær að þetta eru sömu klippur og í mars. Þeir hafa ekki breytt um leikstíl.“ Það sé alltaf erfitt að spila á móti tíu manna blokk. Frakkar og Tyrkir hafi átt erfitt með að brjóta þá á bak aftur. „Við gerum þá kröfu að við klárum svona leiki, komum boltanum inn í teig og klárum þær stöður. Þetta verður þolinmæðisverk en við gerum þær kröfur að við eigum að klára þá á heimavelli,“ sagði Alfreð. Andorra verið seint sakað um að spila skemmtilegan fótbolta. Þeir brjóta mikið af sér og pirra andstæðinga sína. Í síðasta leik gegn Moldóvum braut liðið af sér 25 sinnum sem er nánast lygileg tölfræði.Kolbeinn Sigþórsson í baráttunni á föstudag. Hamrén sagði að hann hefði verið þreyttur eftir leikinn og í gær en væri klár í slaginn í dag. Fréttablaðið/Anton BrinkÍsland þarf að sigra Andorra og þarf reyndar að vinna alla leikina sem eftir eru, gegn Moldóvum og Tyrkjum, og treysta á að Frakkar vinni Tyrki. Ef sá leikur endar í jafntefli dugar Frökkum að vinna Moldóva á heimavelli eða Albana á útivelli og Tyrkjum dugar að vinna Andorramenn í lokaumferðinni. Ef Tyrkir vinna þá mega heimsmeistararnir aðeins fá eitt stig gegn Moldóvu og Albaníu eða að Tyrkland tapi bæði fyrir Íslandi og Andorra. Nái Ísland ekki efstu tveimur sætunum fer liðið líklega í fjögurra liða umspil í lok mars um eitt laust sæti á EM. Ísland og Andorra hafa mæst sex sinnum í undankeppni fyrir stórmót og hefur Ísland alltaf unnið. Markatalan er 16-0 en stærsti sigurinn kom árið 2010 þegar Ísland vann 4-0. Þá skoraði Heiðar Helguson tvö mörk, Veigar Páll Gunnarsson eitt og Kolbeinn Sigþórsson eitt. Andorra hafði fyrir föstudaginn tapað öllum sínum 56 leikjum í undankeppni EM síðan liðið hóf keppni árið 1998. En Marc Vales tryggði Andorra sigur gegn Moldóvu eftirminnilegan sigur þó að liðið hafi aðeins verið 31 prósent með boltann. Markið skilaði þriðja sigri Andorra á 23 árum í öllum keppnum á vegum UEFA og FIFA. Andorra er númer 139 á styrkleikalista FIFA. Fyrri leikur liðanna endaði með 0-2 útisigri Íslands en sá leikur fór fram í mars. Þá skoruðu Birkir Bjarnason og Viðar Örn Kjartansson mörkin.vísir
Birtist í Fréttablaðinu EM 2020 í handbolta Mest lesið Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Fótbolti „Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Sport „Takk fyrir mig Keflavík, þetta var æðisleg sería“ Sport Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM Fótbolti Liðsfélagi Glódísar Perlu ráðin í starf hjá karlaliði Bayern Fótbolti Lyon gerði það sem Liverpool tókst ekki á móti PSG Fótbolti Ísland fékk sínu ekki framgengt: Rússar mega sigla undir hlutlausum fána Sport Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Enski boltinn Elísabet stórbætti Íslandsmetið og Júlía hljóp annað met Guðrúnar uppi Sport „Ég er hrikalega stoltur af honum“ Fótbolti Fleiri fréttir Liðsfélagi Glódísar Perlu ráðin í starf hjá karlaliði Bayern Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM „Hann var grátandi í hálfleik“ Lyon gerði það sem Liverpool tókst ekki á móti PSG „Góður dagur fyrir rauða hluta Liverpool“ „Góð auglýsing fyrir ensku úrvalsdeildina“ „Við fengum stór færi til að vinna“ Viktor Bjarki skoraði þegar FCK landaði sigri eftir að hann kom inn á Luis Díaz lagði upp tvö þegar Bæjarar tryggðu sér þýska titilinn Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Viðar með stoðsendingu í stórsigri Gibbs-White með þrennu í mikilvægum sigri Abraham tryggði Aston Villa sigur eftir snilldar viðsnúning hjá Sunderland „Ég er hrikalega stoltur af honum“ Van Dijk tryggði Liverpool sigur í nágrannaslagnum Skoraði fyrsta löglega rangstöðumarkið Sjáðu sigurmark Cunha, Tottenham tapa stigum og hjólhestinn hjá miðverðinum Braust út úr klefanum þegar æfir stuðningsmenn Bröndby fóru heim til hans Arne Slot: Tapið í Meistaradeildinni gæti hjálpað Liverpool Knattspyrnukonurnar sem urðu eftir Segja að há lestarfargjöld muni hafa „lamandi áhrif“ á HM „Ef við töpum fyrir Arsenal þá er þetta búið“ Orri klikkaði í vítakeppninni en varð samt bikarmeistari „Ég elska það sem ég er að gera“ Man. United með risaskref í átt að Meistaradeildarsæti Einnkunnir íslenska liðsins: Flott frammistaða í seinni hálfleik „Ég vil ekki vinna með döpru fólki eða með neikvæðu fólki“ „Settum meiri pressu á þær í seinni hálfleik“ Stórkostlegt mark Xavi Simons dugði Tottenham næstum því Sjá meira