Stórkostleg frammistaða Sölku Sólar sem Eivör í Eftirhermuhjólinu Andri Eysteinsson skrifar 5. október 2019 10:35 Salka Sól og Sóli Hólm sungu til dæmis sem Eivör og Daði Freyr
Spjallþátturinn Föstudagskvöld með Gumma Ben var á dagskrá Stöðvar 2 í gærkvöldi. Gestir Gumma að þessu sinni voru söngkonan Salka Sól, rapparinn Emmsjé Gauti og skemmtikrafturinn Hjálmar Örn. Gumma til halds og traust var sem fyrr, Sóli Hólm. Nýr dagskrárliður var kynntur til leiks í gær, „Eftirhermuhjólið“ svokallaða, sem gæti allt eins verið innblásið af lið í spjallþáttum Jimmy Fallon, en eins og Gummi Ben orðaði það sjálfur. „Kannski erum við búin að stela þessu einhvers staðar frá, en aldrei gert á Íslandi.“ Þau Salka Sól og Sóli Hólm kepptust þar í því að syngja lög sem annar tónlistarmaður. Sóli fékk þau verkefni að syngja Hemma Gunn slagarann „Einn dans við mig“ sem rapparinn Arnar Freyr úr hljómsveitinni Úlfur Úlfur, sem er einmitt eiginmaður Sölku Sólar. Þá tók hann einnig lagið „Þorparinn“ sem Daði Freyr. Sóli stóð sig með prýði en senunni stal söngkonan Salka Sól. Salka söng jólalagið „Þú og ég og jól“ sem Svala Björgvins áður en hún tryllti lýðinn með stórkostlegum flutningi á laginu um það sem er bannað sem færeyska söngdrottningin Eivör Pálsdóttir. Sjá má dagskrárliðinn Eftirhermuhjólið í spilaranum hér að neðan.
Föstudagskvöld með Gumma Ben og Sóla Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Fær nafn átta árum eftir opinberun Leikjavísir Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“