Heimsending á hádegismat fyrir vinnustaði Matarkompaní kynnir 8. október 2019 13:00 "Réttirnir okkar eru mitt á milli þess að vera klassískur heimilismatur sem fólk þekkir í mötuneytum og réttir sem fólk fær sér á veitingastað þegar það fer út að borða."
Matarkompaníið býður upp á bragðgóða fyrirtækjaþjónustu í hádeginu. Hægt er að panta mat fyrir starfsmannahópa frá fimmtán manns og upp úr og fá sendan á staðinn. Guðmundur Óli Sigurjónsson, matreiðslumaður og eigandi MatarkompanísGuðmundur Óli Sigurjónsson, matreiðslumaður og eigandi Matarkompanís leggur áherslu á ferskt hráefni og matreiðslu frá grunni. „Réttirnir okkar eru mitt á milli þess að vera klassískur heimilismatur sem fólk þekkir í mötuneytum og réttir sem fólk fær sér á veitingastað þegar það fer út að borða. Við notum eingöngu ferskt grænmeti í matargerðina, aldrei frosið og fiskurinn kemur til okkar ferskur að morgni dags. Við leggjum mikinn metnað í matreiðsluna og komum til móts við kröfuharða. Fjölbreytnin er mikil, við erum ekki bara með brúna sósu með öllu heldur búum til ýmsar léttar jógúrtsósur til dæmis. Hjá okkur er hægt að velja milli fiskrétta, kjötrétta og veganrétta og fá súpu dagsins og brauð. Þá er einnig hægt að kaupa brauð og velja um fjórar tegundir af salati.“Allur gangur er á því hversu oft í viku fyrirtæki nýta sér þjónustuna aðeins þarf að passa að panta með tveggja sólarhrings fyrirvara.„Það er lítið mál að panta á heimasíðunni okkar,“ segir Guðmundur. „Bara ýta á „Panta mat“ neðst á forsíðunni, fylla út pöntun og senda. Fólk fær staðfestingu senda til baka. Maturinn kemur síðan tilbúinn á staðinn, ýmist í einstaklingsbökkum eða í fjölnota stálbökkum sem fara yfir hitaborð eftir því hvernig viðskiptavinurinn vill hafa það. Á mörgum stærri vinnustöðum eru hitaborð til staðar en minni vinnustaðir vilja gjarnan einstaklingsbakka og við notum umhverfisvæna bakka úr vaxhúðuðum pappír. Við sendum bakkana í hitakassa á staðinn og sækjum svo hitakassann eftir að matartíma lýkur.“ Matarkompaníið þjónustar stórhöfuðborgarsvæðið og hefur byggt upp fyrirtækjaþjónustuna auk veisluþjónustu. Nánari upplýsingar er að finna á matarkompani.isÞessi kynning er unnin í samstarfi við Matarkompaní.
Matur Mest lesið Svona mikið kostar kaffið á Starbucks hér á landi Neytendur Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Viðskipti innlent Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Viðskipti innlent Spá 2,2 prósent hagvexti í ár Viðskipti innlent Trausti Sigurður og Jóhanna nýir forstöðumenn hjá VÍS Viðskipti innlent Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Minnstu sparisjóðirnir sameinast Viðskipti innlent Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Viðskipti innlent Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Neytendur Fleiri fréttir F1: The Movie frumsýnd í Egilshöll – sjáðu myndirnar Djúsí maísstönglar frá BBQ kónginum BYKO PLÚS er nýr fríðindaklúbbur fyrir einstaklinga Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Tímamótasamningar í íslensku sjónvarpi Topp fimm tólin í verkfærakistuna Yfir 20.000 viðskiptavinir og tíföldun gengis á fimm árum Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk Sjá meira