Aðrir meðlimir hljómsveitarinnar týndust fram á sviðið, bættust við og svo var talið í Hólmfríði Júlíusdóttur; lagið sem vakti eftirminnilega athygli á hljómsveitinni Nýdönsk þegar langt var liðið á 9. áratug síðustu aldar. Enda frábærlega vel gerður slagari, rokkaður og melódískur. Meðlimir þá bráðungir en kröfðust þess af mikilli einurð að þeir væru teknir alvarlega.
Salurinn allur kominn á fætur og trallaði með og tjúttaði.Enda voru tónleikarnir uppbyggðir og fluttir af mikilli fagmennsku. Þarna fara menn sem vissu nákvæmlega hvað þeir voru að gera. Nýdönsk flutti sín þekktustu lög af virðingu fyrir lögum sínum af miklu öryggi og spilagleði. Hljómsveitin er í fantaformi sem er athyglisvert í ljósi þess að hún starfar til þess að gera slitrótt.
Erfitt að setja hljómsveitina á bás
Ég hef lengi verið einlægur aðdáandi hljómsveitarinnar og hefur einhvern veginn fundist Nýdönsk vanmetin. Sem er ekki nákvæmt orð yfir það sem ég vildi sagt hafa því það var ekki að sjá í Eldborg að fólk kynni ekki að meta hljómsveitina og það sem hún hefur fram að færa.
Hljómsveitin hefur starfað sundur og saman í leikhúsi og greina má söngleikjabrag í sumum laganna. Þarna ægir öllu saman en virkar.Með öðrum orðum er erfitt að setja fingur á og við hvað skal miða? Meira að segja nafn hljómsveitarinnar er til vandræða. Hvernig á eiginlega að beygja þetta heiti? Eða öllu heldur, á að beygja? Er þetta skrifað Ný dönsk eða Nýdönsk? Hljómsveitin er eitt allsherjar ólíkindatól.
Einstaklega vel skipuð hljómsveit
Nýdönsk er alveg einstaklega vel skipuð. Það verður bara að segjast, þar er ekki veikur hlekkur. Frontarar hljómsveitarinnar eru auðvitað ekki af lakara taginu. Daníel Ágúst er einn besti söngvari sem fram hefur komið í íslenskri dægurtónlist og fóstbróðir hans Björn Jörundur einhver sá sérstæðasti. Björn er kannski gegnheilasti töffari sem komið hefur fram í íslensku tónlistarlífi. Og sýndi það á tónleikunum, til dæmis þegar hann greip í bassann í laginu Stundum, síðasta lagi fyrir hlé.
En, það má heita til marks um hversu vel mönnuð hljómsveitin er að þegar Daníel Ágúst hætti um hríð og snéri sér að heimsfrægðinni með Gus Gus, lagði Nýdönsk ekki niður störf og vafðist þá ekki fyrir Birni Jörundi að syngja fyrir allan peninginn. Svo féllust menn auðvitað í faðma með tárum þegar Daníel Ágúst sneri aftur heim.
Djarfar hvítar buxur
Veruleg breyting varð á Nýdönsk árið 1990 þegar hljómsveitin vann að plötunni Regnbogalandi. Þá voru, sem fyrr segir, þeir Björn, Daníel Ágúst og Óli Hólm eftir. Þeir Jón Ólafsson og gítarleikarinn Stefán Hjörleifsson, sem saman mynduðu dúettinn Possibillies, höfðu aðstoðað við gerð plötunnar en gengu svo til liðs við hana.
Síðan hafa komið, með hléum, melódísk lög sem hafa límt sig í þjóðarvitundina.Framlag þeirra til dægurmenningar Íslands er ótvírætt og ég vil ganga svo langt að telja Nýdönsk með fimm bestu hljómsveitum sem fram hafa komið á Íslandi. Er þá mikið sagt en þeir sýndu það og sönnuðu með sérdeilis frábærum tónleikum sínum um helgina. Þar skiptir kannski mestu máli að innan vébanda hljómsveitarinnar eru ótrúlega góðir lagasmiðir.
Vísindalega upp byggt
Hér neðar má sjá lagalistann eins og hann liggur fyrir. Eins og þeir sem þekkja lögin geta lesið í er þetta samanskrúfað af nánast vísindalegri nákvæmni manna sem vita upp á hár hvað þeir eru að gera. Í seinni hluta fyrri helmings kom strengjasveit á sviðið og tók þátt í flutningi fjögurra eða fimm laga. Auðvitað virkaði það eins og upp var lagt með. Hljómburðurinn í Hörpu svíkur ekki og Eldborgarsalurinn fór þeim félögum vel og strengjasveitinni vel.Áður var það nefnt að hljómsveitin hafi verið í fanta formi en ef eitthvað er hægt að setja út á er það helst að þeir voru of öruggir með sig. Á löngum köflum var laglínan látin liggja á milli hluta og söngvararnir í að keppast við röddun. En, það kom ekki að sök því gestirnir kunnu sönginn.

Hjálpaðu mér upp
Þá kemur þú
Alelda
Freistingar
Flauel
Landslag skýjanna
Allt
Félagslíf plantna
Hversdagsprins
Á plánetunni Jörð
Stundum
HLÉ
Diskó Berlín
Náttúran
Blómarósahafið
Nýr maður
Ilmur
Á sama tíma að ári
Klæddu þig
Hunang
Frelsið
Fram á nótt
Horfðu til himins
AUKALÖG:
Flugvélar
Hólmfríður Júlíusdóttir