Katrín hefur getið sér gott orð sem danshöfundur og er ÞEL fyrsta verkið sem hún semur fyrir Íslenska dansflokkinn. Katrín lýsir verkinu sem lífveru og líkama hóps sem fléttast saman, hlustar og leitar að samstöðu í gegnum endurteknar umfaðmandi athafnir í hreyfingum og söng, sem skapar þannig samhug og nánd sín á milli. Eva Signý Berger mun sjá um hönnun á búningum og sviðsmynd en þetta er fimmta sýningin sem þær tvær vinna saman að. ÞEL verður frumsýnt 20. september á Nýja sviði Borgarleikhússins.
ÞEL er lífvera og líkami hóps. Hóps sem fléttast saman, hlustar og leitar að samstöðu í gegnum endurteknar umfaðmandi athafnir í hreyfingum og söng og skapa þannig samhug og nánd sín á milli.
ÞEL er lífrænt mjúkt og brothætt handverk, líkamlegt landslag. ÞEL er nýtt íslenskt verk eftir grímuverðlaunahafann Katrínu Gunnarsdóttur.
Katrín Gunnarsdóttir er íslenskum dansunnendum vel kunn enda hefur hún svo sannarlega lagt sitt af mörkum í þróun samtímadans á Íslandi undafarin ár. Katrín hefur hlotið fjölmargar tilnefningar til Grímuverðlaunanna og þrívegis hlotið þau; sem Danshöfundur ársins 2018 fyrir Crescendo, Dansari ársins 2017 fyrir Shades of History og Danshöfundur ársins 2013 ásamt Melkorku Sigríði Magnúsdóttur fyrir Coming Up. Katrín hefur einnig tvívegis verið tilnefnd til Menningarverðlauna DV (2015 og 2016) og tilnefnd í TANZ magazine (2017) ásamt Marmarabörnum fyrir sýninguna Moving Mountains.
Verk Katrínar hafa verið sýnd víða um Evrópu ásamt því að hún hefur verið danshöfundur í sýningum hjá Þjóðleikhúsinu, Theatre Republique í Danmörku, Íslensku Óperunni og Toneelgroep í Amsterdam.
Danshöfundur: Katrín Gunnarsdóttir
Búningar og sviðsmynd: Eva Signý Berger
Tónlist: Baldvin Þór Magnússon
Lýsing: Kjartan Þórisson
Dramatúrgísk aðstoð: Alexander Roberts og Ásgerður G. Gunnarsdóttir
Dansarar: Elín Signý Weywadt Ragnarsdóttir, Erna Gunnarsdóttir, Ernesto Camilo Aldazabal Valdes, Halla Þórðardóttir, Sigurður Andrean Sigurgeirsson, Shota Inoue og Unu Björg Bjarnadóttur.
Hér að neðan má sjá myndband frá Íslenska dansflokknum þar sem sjá má brot úr sýningunni.