Son og Spurs í stuði gegn Palace Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. september 2019 16:12 Son skoraði tvö mörk á fyrstu 23 mínútunum gegn Crystal Palace. vísir/getty
Tottenham kjöldró Crystal Palace, 4-0, á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Son Heung-Min skoraði tvö mörk fyrir Spurs sem er komið upp í 3. sæti deildarinnar. Palace er í 11. sætinu en aðeins einu stigi munar á liðunum. Son kom Tottenham yfir á 10. mínútu. Patrick van Aanholt skoraði sjálfsmark á 21. mínútu og tveimur mínútum síðar gerði Son sitt annað mark og þriðja mark Spurs. Érik Lamela skoraði svo fjórða mark Tottenham þremur mínútum fyrir hálfleik. Lokatölur 4-0, Spurs í vil. Jóhann Berg Guðmundsson var fjarri góðu gamni vegna meiðsla þegar Burnley gerði 1-1 jafntefli við Brighton. Neal Maupay kom Brighton yfir á 51. mínútu en Jeff Hendrick jafnaði í uppbótartíma í sínum 100. leik í ensku úrvalsdeildinni. Burnley og Brighton eru bæði með fimm stig. Southampton lagði Sheffield United að velli, 0-1. Moussa Djenepo skoraði eina mark leiksins á 66. mínútu. Billy Sharp, leikmaður Sheffield United, var rekinn af velli fimm mínútum fyrir leikslok. Dýrlingarnir hafa fengið sjö stig í síðustu þremur leikjum og eru í 10. sæti deildarinnar með sjö stig. Sheffield United er með fimm stig í 13. sætinu.Úrslit dagsins: Tottenham 4-0 Crystal Palace Brighton 1-1 Burnley Sheffield United 0-1 SouthamptonMan. Utd. 1-0 LeicesterWolves 2-5 ChelseaLiverpool 3-1 Newcastle
Enski boltinn Tengdar fréttir Þægilegt hjá Liverpool á Anfield Liverpool vann öruggan 3-1 sigur á Newcastle United í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool hefur nú unnið 14 deildarleiki í röð. 14. september 2019 13:30 Loks lönduðu Ole Gunnar Solskjær og hans menn þremur stigum Manchester United vann langþráðan sigur er liðið lagði Leicester City af velli í ensku úrvalsdeildinni í dag, lokatölur 1-0. 14. september 2019 15:45 Abraham með þrennu gegn Úlfunum Tammy Abraham hefur skorað sjö mörk í síðustu þremur deildarleikjum Chelsea. 14. september 2019 15:45 Mest lesið Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Fótbolti Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Fótbolti Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn Benedikt markahæstur í sannfærandi sigri Kolstad Handbolti Fleiri fréttir Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Guardiola samdi til ársins 2027 Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Amorim vill að United fái Gomes aftur Martröð fyrirliða Chelsea heldur áfram Neville gagnrýnir Bandaríkjaför Rashford og Casemiro Sagður hafa tvo leiki til að bjarga starfinu Fær ekki að eyða í leikmenn í janúar Liverpool og Newcastle berjast um Mbeumo Fengu ljót skilaboð eftir óléttumynd: „Fyrirmunað að skilja þessi viðbrögð“ Guardiola framlengir við Man. City Klopp vildi fá Antony í stað Salah Tengdasonur Keane skoraði fyrir enska landsliðið Heimildaþáttaröð um lið Rooney og Guðlaugs Victors Landsliðskonurnar eiga von á barni saman Amorim fékk loksins að stýra æfingu hjá Man. United Liverpool fær Van Dijk fyrr til baka Fékk sjö leikja bann fyrir það sem hann sagði um eigin fyrirliða Sjá meira
Þægilegt hjá Liverpool á Anfield Liverpool vann öruggan 3-1 sigur á Newcastle United í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool hefur nú unnið 14 deildarleiki í röð. 14. september 2019 13:30
Loks lönduðu Ole Gunnar Solskjær og hans menn þremur stigum Manchester United vann langþráðan sigur er liðið lagði Leicester City af velli í ensku úrvalsdeildinni í dag, lokatölur 1-0. 14. september 2019 15:45
Abraham með þrennu gegn Úlfunum Tammy Abraham hefur skorað sjö mörk í síðustu þremur deildarleikjum Chelsea. 14. september 2019 15:45